Hefðbundin einkaheimili - jæja

Þessi hefðbundnu einkaheimili - tvær hæðir í stórhýsi í NY - 4-800 fermetra einbýlishús í London -

kjallaraíbúð í Holtum - 600 fermetra einbýli á Arnarnesinu - risíbúð í Hlíðunum - einbýlishús við Fríkirkjuveginn -

Rosalega er ég þakklátur fyrir að þurfa ekki að samræma þetta í einu húsnæði.

Hvað með að hjálpa fólki til þess að búa heima hjá sér - hætta að skattpína fólk sem á kanski litla íbúð - makinn farinn - og allt hirt ef viðkomandi á meira en einhvern smá varasjóð í banka - ?

Af hverju þarf að smala öldruðum í kassa ??  Er ekki fullt af auðu félagslegu húsnæði um allt land? Þarf að bæta við fleiri auðum íbúðum? Hver á svo að kaupa íbúðirnar af öldruðum?

Enn ein spurning  - hvernig stendur á því að þegar öryrki kemst á eftirlaunaaldur þá lækka greiðslur til hans? Batnar honum á þessum tímamótum - eða á að svelta hann svona í rólegheitum?

Hver er skýringin?


mbl.is Fyrsta öldrunarheimilið sem reist verður út frá nýjum viðmiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband