Framtíðarsýn Sf
6.11.2010 | 05:41
Þessi frétt stenst ekki -
Hún stangast algjörlega á við málflutning jóhönnu og co og er þar af leiðandi ekki rétt.
Mbl verður að leiðrétta þessi mistök.
![]() |
Evrópska skuldakreppan fer versnandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það þýðingarmesta??
5.11.2010 | 16:26
Á sama tíma og allt er í upplausn og engin úrræði komi frá ríkinu er verið að setja á stofn nefnd til þess að rannsaka aðdraganda stuðnings við innrásina í Írak.
ER ÞAÐ MÁLIÐ SEM MEST RÍÐUR Á NÚNA?
ERU FULLTRÚAR SAMFYLKINGAR - VINSTRI GRÆNNA OG HREYFINGARINNAR GJÖRSAMLEGA GJÖRSNEYDDIR ALLRI VITNESKJU UM ÞAÐ SEM ER AÐ GERAST Í ÞJÓÐFÉLAGINU Í DAG?
THE BLAME GAME ER Í FULLUM GANGI OG EKKI AÐ FURÐA ÞÓTT ÞESSI LÁNLAUSA OG VONLAUSA STJÓRN SÉ AÐ KEYRA ALLT Í KÁSSU.
Þetta mál hefði mátt bíða þangað til önnur og vægast sagt brýnni verkefni væru komin í höfn.
Núna verður það krafa að sett verði á laggirnar nefnd sem rannsaki aðdraganda þess að ríkisstjórnin ætlaði að keyra Icesave samninginn hans Svavars Gestssonar og VG óséð. Þar bjargaði stjórnarandstaðan málunum ásamt órólegu deildinni í VG.
![]() |
Vilja rannsaka ákvörðun um stuðning við Íraksstríð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Frændur vorir
5.11.2010 | 15:22
Þeir klikka ekki " frændur" vorir svíar.
Heima hjá sér eins og lúbarðir hundar - erlendis háværir leiðinda hrokafullir ruddar - þannig var það í öllu falli þegar ég lenti í því að umgangast þenna þjóðflokk.
Fátt virðist hafa lagast í þeim málum.
![]() |
Biður afsökunar á hegðun sinni á Ölstofunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hagfræði SJS
5.11.2010 | 11:32
Þetta er hræðileg frétt -
Nú þarf að hækka skatta - strax - þannig er - skv. hagfræði sjs að -
Í fyrra var afgangurinn af vöruskiptum við útlönd 12.1 milljarður í október en í ár er 10 milljarðar í október- þess vegna þarf að ná inn "tapinu".
Þegar dæmið snýst við og afgangurinn er meiri í ár þarf ekkert að gera.
Þetta er svipað og hjá olíufélögunum - þegar heimsmarkaðsverð hækkaði þá hækkaði verð hér strax - þegar heimsmarkaðsverð lækkaði - lækkaði ekkert hér í einhverjar vikur - það var svo mikið þegar lækkunin varð en ekkert þegar hækkunin skall á.
Þetta er svipað og að þegar það kom í ljós að framlag til nýju bankanna var mun lægra en talið var - þá var samt ekki hægt að draga úr skattpíningu og verðhækkunum. Sama gildir um alla aðra þætti.
En ef einhversstaðar þarf að greiða 10 milljónum meira þarf að lækka bætur og niðurgreiðslur.
Þar vegur milljónin þungt en milljarðatugirnir í bönkunum vega ekki neitt.
Mig hryllir við því að sjá til hvaða örþrifaráða stjórnin grípur til þess að dekka þetta "tap".
![]() |
10 milljarða afgangur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ásta og Jóhanna.
5.11.2010 | 06:20
Jóhanna er að sjálfsögðu á villigötu(m). Það er hennar andlega heimilisfang.
Ásta bað fólk að mæta til þess að krefjast utanþingsstjórnar - seinna var því svo breytt skildist mér í það að mótmæla aðgerðarleysi stjórnvalda. Og gerræðisákvörðunum þegar um þær væri að ræða.
Eitthvað hef ég - og fleiri- fengið rangar upplýsingar því að í viðtali við sjónvarpsfólk talaði Ásta um utanþingsstjórn.
Ég geri kröfu um þverpólitíska stjórn næstu mánuði (verkstjórn) stjórn sem taki á afmörkuðum verkefnum og að síðan verði kosið í apríl- maí.
Ég vil enga utanþingsstjórn - dettur fólki í hug að maður sem var formaður Alþýðubandalagsins velji einhverja aðra en skoðanabræður og systur í slíka stjórn. Vill kennarastéttin fá utanþingsstjórn sem "vinur hennar" á Bessastöðum hefur valið - maðurinn sem setti lög á kennara? - Vill verkalýðsforystan að fyrrverandi formaður flokks sem stóð fyrir mestu kjaraskerðingum sögunnar velji hér utanþingsstjórn?
Eftir lofræður ÓRG um Jón Ásgeir og aðra útrásar...... gæti hann hugsanlega valið þá í hin ýmsu embætti.
Fólk ætti að skoða opinber afskipti forseta áður en það setur slíkt vald í hans hendur.
![]() |
Jóhanna má halda annað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Nei nei nei svona má ekki tala.
5.11.2010 | 05:55
Háskólafólk á að vita að það er ekki pólitískur rétttrúnaður að tala svona.
Þegar kannanir sýna svona niðurstöður ber tafarlaust að eyða þeim. Þ.e. niðurstöðunum ekki fólkinu sem framdi viðkomandi könnun.
![]() |
Sjálfstæðir skólar passa betur upp á hverja krónu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Stella og sjálfshjálpin.
5.11.2010 | 05:51
Starfsemi hjálparsamtakanna hvetur ekki til sjálfshjálpar segir Stella K. Víðisdóttir, sviðsstjóri hjá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar.
Af hverju í kolsvarta heitasta ....... heldur þessi kvenmaður að fólk standi í þessum biðröðum?
Ef hún heldur að fólk geri þetta sér til gamans í staðinn fyrir t.d. bíóferðir þá skjátlast henni.
Sjálfsagt eru einhverjir að misnota þetta en yfirgnæfandi meirihluti fer þarna af öskrandi þörf.
Stella segir einnig " Við höfum áhyggjur af þessum röðum, þar sem fólk bíður eftir að fá mat í poka".
Fólk er þó að fá einhvern mat sem er meira en það færi hjá !Velferðarsviði ?- borgarinnar.
Vissulega væri betra fyrir þetta fólk að geta framfleytt sér - EN HVERNIG VÆRI ÞÁ AÐ BORGIN STÆÐI FYRIR ATVINNUSKAPANDI STARFSSEMI Í BORGINNI Í STAÐ ÞESS AÐ STANDA Í FYRSTU HÓPUPPSÖGNINNI Í SÖGU BORGARINNAR.
![]() |
Deila á matargjafir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kína og innanríkismálin -
5.11.2010 | 05:38
Ég er hlyntur auknum samskiptum við Kína. EN - þeir saka aðra um afskipti af innanríkismálum í Kína með því að veita kínverskum manni viðurkenningu.
En eru þeir sjálfir ekki að skipta sér af innanríkismálum allra þeirra landa sem þeir hvetja til að mæta ekki í veisluhöldin í tengslum við afhendingu verðlaunanna?
Þeir hóta ( og framkvæma ) versnandi samskiptum við þjóðir sem tala við Dalai Lama.
Könnun sýnir 8,1% minni viðskipti við Kína næstu 2 ár á eftir.
Það er undarlegt að þessi fjölmennasta þjóð veraldar skuli hræðast svo einstaklinga á borð við Dalai Lama og Liu Xiaobo að þeir láti það hafa áhrif á heimsviðskipti og samskipti við þjóðir heims.
Er Kína - með sína stórmerku sögu - ekki of öflugt stórveldi til þess að liggja í slíkum skotgröfum?
![]() |
Ætla að spilla Nóbelsverðlaunaveislunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
HÓTUN OG ÓSANNINDI
4.11.2010 | 10:59
Hótun Jóhönnu er innantóm - en annars hélt ég að það væri ekki lögum samkvæmt að hóta - og það að hóta heilli þjóð - það hlýtur að flokkast undir stórfellt afbrot.
Ósannindi - - það vanti tillögur frá stjórnarandstöðunni????
Gefum heimilum von
Skattahækkanir dregnar til baka á næstu tveimur árum
Fréttatilkynning 1. nóvember 2010
- Skattar lækkaðir á heimili úrræði rýmkuð og einfölduð
- Nýtum auðlindir sköpum tuttugu og tvö þúsund störf innan þriggja ára
- Betri ríkisrekstur fátæktargildrum í bótakerfum útrýmt
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins kynnir í dag tillögur sínar um aðgerðir til að stuðla að sátt við heimilin, verja velferð með ábyrgum ríkisfjármálum, efla atvinnulífið og fjölga störfum. Þingsályktunartillaga þessa efnis verður lögð fram um leið og þing kemur saman á fimmtudaginn.
Í tillögunni kemur fram að efnahagsbatinn sem spáð var á þessu ári láti standa á sér en það er afleiðing vanhugsaðra aðgerða í skattamálum og aðgerðaleysis í málefnum heimila og atvinnulífs.
Sjálfstæðisflokkurinn leggur því fram tillögur sínar um aðgerðir í efnahagsmálum, sem eiga að bæta stöðu heimila, fyrirtækja og ríkissjóðs, endurheimta tiltrú á íslenskt efnahagslíf og fjölga störfum.
Tillögurnar skiptast í þrennt og snúast í fyrsta lagi um að gefa heimilum von, í öðru lagi um endurheimtu starfa og eflingu atvinnulífs og í þriðja lagi um hagræðingu og aðhald í rekstri ríkisins, sem er mikilvæg forsenda áframhaldandi velferðar í landinu.
Skattar lækkaðir á heimili úrræði rýmkuð og einfölduð
Sjálfstæðisflokkurinn vill að skattahækkanir núverandi ríkisstjórnar á heimilin verði dregnar að fullu til baka á næstu tveimur árum.
Einnig vilja sjálfstæðismenn að greiðsluaðlögunarúrræðin verði einfölduð verulega og rýmkuð frá því sem nú er og að öllum sem þess óska standi til boða að lækka greiðslubyrði fasteignalána sinna um allt að 50% næstu þrjú árin gegn lengri lánstíma. Þá skuli þeir sem missa atvinnu eiga rétt á að frysta greiðslur vegna húsnæðisskulda í allt að sex mánuði. Þeim sem missa heimili sitt vegna mikillar skuldsetningar eða gjaldþrots verði gert kleift að endurleigja það gegn hóflegri greiðslu og njóta kaupréttar á húsnæðinu í allt að fimm ár.
Lagt er til að fyrningarfrestur eftir gjaldþrotaúrskurði verði styttur, afskrifaðar skuldir einstaklinga sem verða eignalausir myndi ekki skattstofn, stimpilgjöld verði afnumin og að tryggt verði með lagabreytingu að þeir, sem misst hafa eigur sínar vegna vanskila á ólögmætum gengistryggðum lánum, geti leitað réttar síns fyrir dómstólum. Skulu þeir njóta flýtimeðferðar. Auk þessa er lagt til að vaxtabóta- og húsaleigubótakerfin verði styrkt í þágu þeirra sem bágust kjörin hafa.
Tuttugu og tvö þúsund störf innan þriggja ára
Með bættum rekstrarskilyrðum munu lítil og meðalstór fyrirtæki ná sér fljótt á strik en þar verða flest störf til. Mynda þarf 22.000 ný störf á næstum tveimur til þremur árum.
Þingflokkur sjálfstæðismanna leggur til að auðlindir verði nýttar skynsamlega, hvötum beitt til að örva hagkerfið, markvisst verði unnið gegn atvinnuleysi og óvissu eytt í umhverfi fyrirtækja.
Meðal þess sem lagt er til er að:
- Auka þorskafla um 35.000 tonn og hverfa frá fyrningarleið
- Greiða fyrir framkvæmdum í Helguvík og koma á orkufreku verkefni á Bakka
- Hrinda í framkvæmd arðbærum verkefnum í samvinnu við lífeyrissjóði og aðra
- Beita skattkerfinu til að verja störf og mynda ný
Lögð er áhersla á að afnema óhagkvæma skatta sem vinna gegn verðmætasköpun og auka skattaafslætti vegna rannsókna og þróunarstarfs. Veita ber nýjum fyrirtækjum undanþágu frá tryggingargjaldi í tvö ár frá stofnun og starfandi fyrirtækjum sem fjölga störfum 2011 og 2012 afslátt af gjaldinu. Endurskoða þarf vörugjöld og verndartolla.
Einnig telur þingflokkur Sjálfstæðisflokksins að eyða verði óvissu um skattlagningu í atvinnurekstri næstu árin og vegna fjárfestingar í orkufyrirtækjum. Þá skuli gjaldeyrishöftum aflétt í kjölfar minnkandi þrýstings á gjaldmiðilinn innan hæfilegs tíma.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins vilja að ýtt verði undir sköpunarkraft atvinnulausra, og þeir sem verið hafa atvinnulausir í meira en sex mánuði fái aðstoð til að hefja eigin rekstur hafi þeir á því áhuga. Tryggingargjald verði lækkað samhliða minnkandi atvinnuleysi.
Betri ríkisrekstur fátæktargildrum í bótakerfum útrýmt
Aðhald í ríkisrekstri er mikilvæg forsenda áframhaldandi velferðar. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins stefnir að hallalausum ríkissjóði árið 2013 en hefur að leiðarljósi að réttur landsmanna til grunnþjónustu í heimabyggð heilbrigðisþjónustu, löggæslu og menntunar sé tryggður óháð búsetu.
Aðgerðir til að bæta rekstur ríkisins en tryggja jafnframt velferð eru í tíu liðum.
Meðal annars er lagt til að á meðan yfirlýsing ríkisstjórnarinnar um ábyrgð á innstæðum í fjármálafyrirtækjum er í gildi verði tekið sérstakt 0,25% gjald af stofni allra innstæðna í bönkunum. Ítrekað er að farin verði sú leið að skattleggja inngreiðslur séreignarsparnaðar.
Lögð er áhersla á að forðast flatan niðurskurð á háskólastiginu en þess í stað byggt á færri og sterkari einingum.
Í heilbrigðiskerfinu skal svigrúm fyrir starfsemi einkaaðila aukið og í auknum mæli byggt á samkeppni um þá þjónustu sem veita þarf.
Fátæktargildrum í lífeyris- og bótakerfum skal útrýmt og hvatar til atvinnuþátttöku skerptir. Bótakerfið skal endurskoðað til að koma í veg fyrir hugsanlega van- eða oftryggingu bótaþega.
Einhver ætti að lesa þetta fyrir hana.
![]() |
Jóhanna: sit út kjörtímabilið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Og enn lýgur stjórnin
3.11.2010 | 20:28
Næsti fundur boðaður á MÁNUDAGINN ?? Það er miðvikudagur - MÁNUDAGINN -
Á meðan "Róm brennur" ætlar stjórnin ekki að halda annan fund fyrr en á MÁNUDAGINN.
Væri ekki nær að halda fund á morgun og fara yfir tillögur Sjálfstæðisflokksins?

Svo mætti halda fund um helgina og fara yfir tillögur stjórnarinnar ef þær eru til.
Á mánudaginn mætti síðan ganga frá samkomulagi um verkefnalista þverpólitískrar stjórnar sem myndi starfa í nokkra mánuði - fram að kosningum í apríl eða maí.
![]() |
Hafa fyrirvara á samráði |