Þvættingur. Og þó.

Gárungarnir segja að þetta stafi af fundi sem VG hélt í dag með Jóhönnu.

Sjájfsagt er þetta ekki satt - og þó.


mbl.is Yfir 500 skjálftar í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

8 hæð - notalegur titringur

Hér á 8 hæð í Tununum var þetta notalegur titringur -

gott að vita af því að húsin eru vel byggð - en hrynja ekki eins og spilaborgir.


mbl.is Jarðskjálfti í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórnin á réttri leið. SJS og Svarti dauði.

Hér er eitt lítið fyrirtæki sem er að blómstra - dæmi um stvinnustefnu stjórnvalda sem vilja lítil og meðalstór fyrirtæki en ekki stóriðju. Og ekki stóriðju OG lítil og meðalstór fyrirtæki.

Og næg eru verkefnin - 5. ferð eftir helgi og fleiri bíða.

Hvaða hálfvitar eru svo að tala um að stjórnin sinni ekki atvinnuuppbyggingu?

Og svo er hin hliðin -  allt þetta fólk sem er að fara styttir hættuna á lengingu listans yfir atvinnulausa.

Áfram Steingrímur - þú ferð að ná því að jafna  áhrif Svarta dauða.

 


mbl.is Ekur með búslóðir til Norðurlanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vantar fleiri nöfn.

Ég heimta nöfnin

Kristóbert - Sjallinn - Parína - Pipri - Patríníus - Uppris.

Óþolandi að auglýsa bara Berni - sósuna ern ekki pipar - Stapann en ekki Sjallann - og fyrst Einína má vera með þá finnst mér að tvíburar megi það líka o.fl.

Sanngirni í þessi mál.


mbl.is Nafnið Stapi samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Markaðspunktar Arion

 

 

 Að samþykkja Icesave hefur einungis um 3-4% neikvæð áhrif á hreinu skuldastöðuna


mbl.is Icesave-málið ekki það stórt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vitnað í SJS

Það er vægast sagt hæpið að vitna í Steingrím J.

Þetta sagði hann í þinginu 2003.

Treystum við ekki þjóðinni? Ekki getur það verið vandinn að nokkrum manni í þessum sal, þingræðissinna, detti í hug að þjóðin sé ekki fullfær um að meta þetta mál sjálf og kjósa um það samhliða því að hún kýs sér þingmenn Stundum heyrist að vísu einstaka hjáróma rödd um að sum mál séu svo flókin að þau henti ekki í þjóðaratkvæði. Það er einhver allra ömurlegasti málflutningur sem ég heyri.

Steingrímur 2011 er á öndverðum meiði og vill ekki þjóðaratkvæðagreiðslu.


mbl.is Icesave hefur áhrif á samninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur 2003.

Þetta sagði Steingrímur í þinginu 2003.

Treystum við ekki þjóðinni? Ekki getur það verið vandinn að nokkrum manni í þessum sal, þingræðissinna, detti í hug að þjóðin sé ekki fullfær um að meta þetta mál sjálf og kjósa um það samhliða því að hún kýs sér þingmenn Stundum heyrist að vísu einstaka hjáróma rödd um að sum mál séu svo flókin að þau henti ekki í þjóðaratkvæði. Það er einhver allra ömurlegasti málflutningur sem ég heyri.

 

Steingrímur 2011 er á annari skoðun -


mbl.is Óviðunandi ábyrgðarleysi forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjendur okkar norðmenn -

Samir við sig - fúlir vegna þess að þeim tókst ekki að kúga okkur í Makríldeilunni -

Það eru þeirra ær og kýr að ganga gegn okkar hagsmunum - svo hversvegna skyldi norska löggan ekki ljúga líka?


mbl.is Lóðsinn fór of snemma frá borði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norræna kjaftæðið - fjandþjóðir.

Mikið ofboðslega er ég þreyttur á þbættingnum um FRÆNDUR OKKAR OG VINI Á NORÐURLÖNDUNUM.

Svíar hafa stundað það um áratuga skeið að standa í vegi fyrir okkur á alþjóðavettvangi og er Alþjóða hvalveiðiráðið gleggtsta dæmið. Þessi fjandþjóð okkar hefur engar taugar hingað - ekkert frekar en hinar fjandþjóðirnar á Norðurlöndunum.

Norðmenn hafa notað olíugróðann í áratugi til þess að undirbjóða okkur á fiskmörkuðum o.fl. og afstaða þeirra í Makrílmálinu er þekkt.

Fjandinn hirði þennan óábyrga blaðasnáp -


mbl.is Sænsk gagnrýni á forsetann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt upp á borðið.

Stanslausir útúrsnúningar - hálfsannleikur og hrein lygar hafa einkennt Helstjórnina.

Núna liggur fyrir þjóðinni að kjósa um Icesave smánarblettinn þeirra Jóhönnu og Steingríms.

Kristján Þór segir að bankinn hafi ekki "leyft" nefndarmönnum Fjárlaganefndar að halda eftir gögnum.

Krafan er ALLT UPP Á BORÐIÐ HVAÐ SVO SEM ÁBYRGÐLAUSUM EMBÆTTISMÖNNUM FINNST EÐA FINNST EKKI.

Við eigum heimtingu á hlutlausu mat og skilgreiningu á þeirri stöðu sem uppi er.

Ragnar Hall mælir með samþykkt - gott og vel - aðrir segja nei - gott og vel.

HVAR ERU RÖKIN Á BAKVIÐ SKOÐANIR ÞESSA FÓLKS?

ER EKKI AÐ FINNA HEIÐARLEGA HAGFRÆÐINGA OG LÖGMENN SEM GETA LAGT HLUTLAUST MAT Á ÞETTA MÁL OG ÚTSKÝRT FYRIR OKKUR Á MANNAMÁLI HVAР -  JÁ  -  HEFÐI Í FÖR MEÐ SÉR OG HVAР -- NEI -- HEFÐI Í FÖR MEÐ SÉR.?

 


mbl.is Ríkið lét ekki vinna sjálfstætt mat á eignasafni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband