Kæra - kæra - strax - kosningar strax
12.9.2010 | 12:26
Það verður fróðlegt -ef þingið samþykkir að draga þetta fólk fyrir Landsdóm - að horfa upp á viðbrögð þeirra sem það heimta - eftir að búið verður að sýkna þau.
Hvað kemur þá - Landsdómur kallaður saman þar sem þingmeirihluti krafðist refsingar á röngum forsendum?
Svo er það þetta með pólitíska andstæðinga - minn tími mun koma sagði jóhanna fyrir nokkrum árum
-Og svo - af hverju ætli það sé að við ein þjóða stöndum svona að verki gagnvart fyrrverandi ráðherrum þrátt fyrir samskonar aðsöðu víða annarsstaðar?
Gott fólk - er ekki rétt að snúa sér að uppbyggingu?
Kosningar strax.
![]() |
Röng niðurstaða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Óheppileg tímasetning?
11.9.2010 | 23:00
Nei - lítilsvirðing múslima sem líta á okkur hin sem aumingja og hórur.
![]() |
Hátíðahöld múslíma samhliða 11. september |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Stund hefndarinnar
11.9.2010 | 22:22
Það var bjart yfir SJS í dag -
Loksins kominn möguleiki á því að refsa fyrir öll árin sem hann var í stjórnarandstöðu.
Viljayfirlýsingin fellur í skuggann af umræðunni um Landsdóminn - Icesave umræðan verður aukaatriði - ekki hvarflar að neinum að Jóhanna hafi verið á ráðherrastól í sömu stjórn og fólkið sem hún vill láta höggva núna
Minn tími mun koma sagði hún - gleðin er takmarkalaus - gleymdur er Seðlabanki - gleymd eru ummæli sem hitta hana sjálfa fyrir í dag - gleymd eru ósannindin sem hún/þau hafa skellt framan í þing og þjóð - og fleira er gleymt sem er eldra - jafn gamalt og stjórnin sem hún sat í fyrir mörgum árum sem félagsmálaráðherra.
Núna er gaman - núna skal refsa -
Og Jón Ásgeir leikur á sína fiðlu og lofar stjórnina í fjölmiðlum sínum - þessi umræða felur umræðuna um þjófnað hans upp á hundruðir milljarða skv. skilanefndunum - og þá á hann líka fé fyrir Samfylkinguna.
Já - siðbótin nær ekki til allra - enda - sumir eru jafnari en aðrir. Jóhanna og SJS leika á sínar fiðlur á meðan þjóðin öll brennur.
Þess má geta að Ísland virðist ætla að vera eina landið sem fer í galdraofsóknir á hendur fyrrverandi (sumum) ráðamönnum -aðrar þjóðir einbeita sér að uppbyggingu.
![]() |
Reynir á ákvæði stjórnarskrár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Hver lak?
11.9.2010 | 07:23
Nendinni er hælt fyrir að halda trúnað -
Mogginn segist hafa áreiðanlegar heimildir fyrir hinu og þessu -
HVER LAK -? eða er Mogginn bara að slá þessu upp - bara si svona?
![]() |
Takast á um tillögurnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Jóhanna og Landsdómurinn -
10.9.2010 | 13:35
Jóhanna var í stjórn með þessum ráðherrum og HAFÐI AFGERANDI ÁHRIF - ef taka á þessi 4 á hún þá ekki að fylgja með?
Einhvernveginn minnir mig að hún hafi sagt fyrir margt löngu að ef hún yrði ekki sátt við niðurstöðu nefndarinnar myndi hún sjálf grípa inn í - er þetta misminni mitt?
Annars - fyrst fólk vill endilega standa í vígaferlum - hefur Súðavíkurslysið verið skoða eitthvað - svona í alvöru? Hættumat o.fl.
![]() |
Jóhanna beitti þrýstingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hvar er Þórólfur?
9.9.2010 | 20:13
Er Þórólfur Árnason ekki á lausu?
Hann er rétt tengdur - af réttu kyni og í réttri fjölskyldu.
Semsagt yfirburðaumsækjandi.
![]() |
Væntanlega ekki gengið frá ráðningu í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sannleikurinn bítur JS í rassinn.
9.9.2010 | 16:02
Þann 1. janúar 1997 sagði núverandi forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir að fátækt á Íslandi væri þjóðarskömm.
Hún sagði einnig orðrétt: Það er vissulega mjög alvarlegt ef sá maður sem öðrum fremur hefur fjöregg þjóðarinnar í hendi sér, sjálfur forsætisráðherrann neitar að horfast í augu við þá staðreynd að tugir þúsunda heimila í landinu búa við kjör nálægt sultarmörkum. Þetta er smánarblettur á þjóðinni," segir á vef Verkalýðsfélags Akraness.
Hvernig væri nú að rifja upp digurmæli Steingríms árin áður en hann settist á ráðherrastól.
![]() |
Spyr Jóhönnu út í þjóðarskömmina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Góður
9.9.2010 | 07:47
Og þar er komin ástæðan fyrir því að sumar þjóðir hafa verið að hugsa um að taka aftur upp sinn gamla gjaldmiðil.
Þær sofnuðu - eða hvað?
![]() |
Evran eins og svefnpilla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
múlla Omar - SJS - og Írak -
9.9.2010 | 07:44
Í Íraksstríðinu var veruleikafirrtur ráðherra landsins aðhlátursefni heimsbyggðarinnar fyrir yfirlýsingar sínar sem í besta falli voru rugl viti firrts manns - múlla Omar talar eins og ofstækisfullir Múslimar gera gjarnan. Hótanir og digurbarkalegar yfirlýsingar hafa oftar en ekki verið fylgifiskar þeirra. Sérstaklega þegar þeir eru í vondum málum.
Sex daga stríðið - man einhver eftir því?
Svo er það Steingrímur sem segir allt á réttri leið ( t.d. þeirri að erlendir fjárfesta hætta við fjárfestingar vegna ruglsins í stjórnvöldum og fáránlegra ákvarðana og skorts á skilningi á markaðnum) og ásakanir þjóðarinnar séu ósanngjarnar ( ekki er ljóst - held ég - hve margar fjölskyldur eiga að fara formlega á hausinn á næstu vikum skv. Viljayfirlýsingunni ) og stjórnarandstaðan sé samansafn af vondu fólki sem eigi að halda sér saman í þinginu.
Þessi þrenning myndi sóma sér vel saman í klúbb - held reyndar að sá í Írak sé dáinn - en það ætti ekki að þvælast fyrir hinum tveim sem virðast ekkert jarðsamband hafa hvort sem er.
![]() |
Segir talibana nálægt sigri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sorgleg skömm Steingríms J.
8.9.2010 | 12:18
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem SJS svarar réttmætum gagnrýnisröddum á þingi með þessum hætti.
Skemmst er að minnast þess þegar Sigurður Kári spurðist fyrir um 18. grein Viljayfilýsingarinnar sem SJS - JS - GYLFI og Trotskyistinn í Seðlabankanum undirrituðu.
Hún fjallar um það að rústa þúsundum heimila um næstu ánaðarmór ( ef ég man dagsetninguna rétt ).
Þetta átti að fara hljótt eins og yfirlýsingin öll - Sigurður fékk fúkyrðaflaum á móti og sagði þá að fátt hefði breyst í þinginu frá því að hann var þar fyrir síðust kosningar.
Þetta er sorglegur leikur sem stundaður er af stjórninni.
![]() |
Og skammastu þín Árni Johnsen |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)