Drepa eða ekki að drepa

 

Ég er líka mjög vonsvikinn vegna þeirrar staðreyndar að bretar - bandaríkjamenn - og fleiri þjóðir skuli halda áfram að drepa fólk hvar sem þeim sýnist ef það hentar þeim til þess að "verja" sig og sína.

En það er jú ekki verið að veiða hvali vegna olíuhagsmuna - þá er það fólk sem er drepið.

Misminnir mig það að bandaríski túnfiskveiðiflotinn drepi tugþúsundir smáhvela við veiðar sínar? Og kasti þeim fyrir borð.

En það er að sjálfsögu annað - morðglaðasta og byssuóðasta þjóð veraldar má gera það sem henni sýnist - með breska viðhengið dinglandi á afturendanum á sér.

Líka það að starta einu stykki heimsbankakreppu - sennilega í því skyni að "verja" sig og sitt.


mbl.is Sameinast um að fordæma hvalveiðar Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FÓLK/bretar - ?? Íslendingar

Október - er ekki seint í rassinn gripið að koma núna með þessa gagnrýni -

stjórnin búin að trassa alla hluti - ábyrgur aðili  á borð við Ögmund hrakinn úr stjórn -

auðlindaskattur - sen enginn veit hver á að borga settur inn í fjárlög -

ítrekaðar bensínhækkanir sem og hækkanir á áfengi og tóbaki sem gera það eitt að hækka skuldir heimilanna á meðn þessir liðir eru inni í framfærsluvísitölunni -

hátekjuskattur upp um ? % - sem hefur sýnt sig í að skila ríkissjóði tekjum þegar hann er hóflegur

Svo er Jóhanna ósammála brown - hann segi að almenningur eigi ekki að borga fyrir mistök bankanna - JÓHANNA VILL AÐ VIÐ BORGUM ÞAÐ ALLT SAMAN - hvað er hún að skamma manninn - þjóðin vill heldur ekki borga fyrir bankana -

stjórnin er að neyða okkur til þess í þeim eina tilgangi að XS geti komið okkur í bandalag með kúgurunum.

brown lítur á breta sem fólk - fróðlegt væri að vita hverning þessi forsvarsmaður nýlendu kúgaranna flokkar okkur.

Ég tek undir með Bjarna Benediktssyni ( og það gerir meirihluti þjóðarinnar ) VIÐ VILJUM EKKI BORGA FYRIR ÚTRÁSARLIÐIÐ - náið í það sem sá hópur hefur undir höndum og nýtið það gífurlega fjármagn til þess að létta af okkur okinu


mbl.is Jóhanna gagnrýnir Brown
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 6. október 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband