HA VESEN??? NEINEI -
23.2.2009 | 07:55
Málið tefst vegna aðgerða Björgólfsfeðga og annara álíka - lítið mál - borgið það sem þið hafið haft af okkur og allt verður miklu léttara og fyrirtækið "ykkar" getur hafið starfssemi - ja - bara strax.
Eða hvað?
Annars er mín skoðun einföld - og spurningin líka - viljum við fleiri eða meiri "uppbyggingu" frá þeim feðgum? Á að sýna okkur fingurinn með gagnaveri í "eigu" Björgólfs á meðan við greiðum milljarða tugi af skuldum þeirra. Sá yngri er ekkert saklaus í þessum málum heldur.
Ein tillaga og áskorun til Björgólfanna - við eigum að greiða fir 70 milljarða af skuldun ykkar -
leggið 100 milljarða inn í Seðlabankann til þess að mæta því sem og annað eins í miskabætur til þjóðarinnar - og þar sem talnaleikir ykkar stóðust ekki þá er 100 + 100 = 200.
Leggið 200 milljarða inn í Seðlabankann - þá teldi ég ykkur hafa sýnt lit á því að biðjast afsökunar á framferði ykkar.
Ólafur I Hrólfsson
![]() |
Gagnaver tefst um ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)