XD

Prófkjörshelgin mikla -

Magnað að Samfylkingin skuli í öllu feta í fótspor Sjálfstæðisflokksins - setur kosninguna sína á sömu helgi og prófkjör Sjálfstæðisflokksins fer fram og kórónar síðan lágkúruna með því að setja landsfund sinn á sömu helgi og Sjálfstæðisflokkurinn heldur sinn Landsfund.

Ekki að furða að dósaberjarastjórnin hafi ekkert fram að færa til lausna í efnahagsmálum annað en það sem fyrri ríkisstjórn var með í vinnslu eða búin að setja í gang. Og Steingrímur gleypir. Það er sannað mál. Og tekur ekkert aukalega fyrir það.

Sjálfstæðismenn standa frammi fyrir því að ef kjörsókn verður léleg þá er það vatn á myllu dósaberjaranna sem hrifsuðu völdin með ofbeldi og svikum.

Er það þesskonar stjórnarfar sem við viljum? Skrílræði götunnar?

Ólafur I Hrólfsson

 


mbl.is Líflegasta prófkjörshelgin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 14. mars 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband