HVAR????? HVAR ER DORRIT?????
27.4.2009 | 05:32
Þögn mannsins hennar Dorrit er eðlileg -
hann talaði og talaði - veitti útrásinni brautargengi meðal þjóða sem héldu að hann væri venjulegur forseti - sannsögull og með völd - hann hældi sér af því að hafa gert útrásarliðinu kleift að komast inn á annars lokaða markaði - og - hann neitaði að samþykkja fjölmiðlalögin sem Jón Ásgeir vinur hans vildi ekki að færu í gegn.
Svo skammaði Dorrit manninn sinn - sem ávítaði hana - og svo skammaði hún hann aftur -
Maðurinn hennar Dorrit vill ekki láta skamma sig - þess vegna þegir hann - hann vill ekki að þjóðin muni hve hlutur hans var ævintýralega stór í "útrásinni" og þess vegna þegir hann.
Spurningin er líka þessi - Hvar - er - var og verður Dorrit?
Er ekki löngu orðið tímabært að leggja þennan skrípaleik niður??
Ólafur I Hrólfsson
![]() |
Berserksgangur á Bessastöðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)