Vantaði bara undirskrift Trotskyistans.
22.11.2010 | 21:11
Hann hikaði víst ekkert við að skrifa undir Viljayfirlýsingu sem fól í sér örbirgð þúsunda heimila
En að selja fjárfestum sem ekki eru honum þóknanlegir - þá er hikað - dregið úr og loks er þeim gefið spark.
Þetta er allt í stíl Steingríms sem vill heldur ekki neina uppbyggingu hér - það á að kúga landsmenn til hlýðni - koma okkur í ESB og þá á allt að verða svo gott.
Óæskilegir fjárfestar verða búnir að fjárfesta erlendis og senda okkur fingurinn - búnir að fá nóg af rugli stjórnarinnar.
Enn eina ferðina segist Jóhanna vonast til að geta upplýst um skjaldborgina - öðru hvoru megin við helgina -
Er furða þótt maður vilji fá kosningar strax - ekki Árbótarsamning heldur opinberar kosningar.
Ekki Icesave a.la Svavar - heldur opinberar kosningar. Ekki níðings Viljayfirlýsingu - heldur opinberar kosningar
![]() |
Segja sig frá kaupum á Sjóvá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvað fékk Guðmundur?
22.11.2010 | 20:53
Fyrst Árbót fékk 30 milljónir í ábót vaknar sú spurning hvort Guðmundur viðbjóður í Byrginu hafi líka fengið ábót.
Kanski í samræmi við afköst.
![]() |
Sakar Barnaverndarstofu um að leka póstunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30 millljónir vinsæl tala
22.11.2010 | 20:46
![]() |
Á annað hundrað milljóna króna kostnaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Og hvað með það?
22.11.2010 | 15:08
Þessi réttarhöld eru skrípaleikur og ekkert annað.
Stórkostlegur vafi leikur á lögnæti þeirra -
Hvað þótt enn eitt brotið bætist við - réttindi Geirs hafa verið fyrir borð borin frá upphafi og pólitísk dusilmenni sett hann á sakamannabekk.
Það verður fróðlegt að sjá hverjir verða settir á þann bekk eftir næstu kosningar. Undirlægjuhátturinn við breta - hollendinga - esb og ags Icesave samningurinn - sá fyrsti - viljayfirlýsingin ættu að duga fyrir fjölmenni á sakamannabekknum - Það er kanski ástæðan fyrir því að sú lánlausa stjórn sem nú situr segir ekki af sér þrátt fyrir 20% fylgi -
einhverjir hefðu séð sóma sinn í afsögn við slíkar aðstæður --
en stjórnin veit jú best hvar hennar sjálfsvirðing liggur - ef einhver er.
![]() |
Skipa hefði átt verjanda um leið segir lagaprófessor |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)