Skapanornin söm við sig.
29.12.2010 | 13:40
Hræðslustjórnmál eru ær og kýr Jóhönnu og voru líka ær og kýr Ingibjargar Sólrúnar og eru orðin sameiginlegur stimpill á þeim og Steingrími með málsóðann Björn Val sem bergmál Steingríms.
Björn þekkir til Jóhönnu - það gera reyndar líka sumir þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem sátu með henni í stjórn Geirs H Haarde.
Það ætti forysta Framsóknar líka að gera eftir blekkingarleikinn sem þeir voru fengnir til að taka þátt í eftir fall stjórnar Geirs.
Fátt stóð eftir af loforðum Sf við Framsókn þegar upp var staðið -
Það var ekki að ástæðulausu að Jón Baldvin og Jón Sigurðsson héldu henni í skefjum á sínum tíma.
![]() |
Björn: Gleyma skapgerð Jóhönnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Loksins - loksins
29.12.2010 | 13:31
En það þurfti pakka allskonar mála til þess að árás á lögreglumann yrði tilefni innisetudóms.
Það er löngu orðið tímabært að dæmt sé í slíkum málum - lögreglumenn eru einhver réttlausasta stétt sem starfar í þessu landi.
Þó barsmíðar - spörk o.fl. dynji á þeim er eins og það dugi árásaraðílunum að segja ææ já ég var íðí - nú eða bara að segja já ok ég gerði það og hvað með það ? - svo er viðkomandi sleppt og sömu lögreglumenn lenda svo í sömu ofbeldismönnunum nokkrum dögum seinna og þessi farsi heldur áfram.
Ætla dómstólar að bíða eftir því að lögreglumaður láti lífið í svona átökum áður en farið verður að verja þá með eðlilegum dómum?
![]() |
Árs fangelsi fyrir að slá lögreglumann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Er það nú ekki dálítið ofmat??
29.12.2010 | 10:43
minnir einna helst á skíðasvæði í Ölpunum.
Það eru þá flötustu Alpar sem ég hef haft spurnir af.
![]() |
Moka og moka en komast ekkert áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Löngu dáin. Árni Þór á líkvaktinni.
29.12.2010 | 01:30
Ríkisstjórnin er löngu dáin - var reyndar andvana fædd.
Spurningin er hinsvegar hvort þjóðin lifir eða ekki - stjórnarskipti ( KOSNINGAR ) verða að fara fram eins fljótt og auðið er og þverpólitísk verkefnastjórn á að starfa á meðan.
Það er eina lífsvon þessarar þjóðar.
![]() |
Telur óvíst að stjórnin lifi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)