Alþjóðlega kreppan ?????

 

Þetta passar ekki - stjórnarsinnar segja að Sjálfstæðisflokkurinn hafi gert þetta ( hann réði heimsmálunum á þessum tíma ) hann var einn við völd þótt Samfylking - Evrópusambandið - Bandaríkjastjórn - ríkisstjórnir einhverra tilgangslausra og áhrifalausra ríkja og aðrir litlir aðilar hafi dinglað með.

Og ekki lýgur Steingrímur


mbl.is Clinton: Allt frá Haítí til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rugl í LÍÚ

Manninum er ekki sjálfrátt - að sjálfsögðu hefur ráðherrann rétt fyrir sér - ef við göngum þarna inn getum við haft veruleg áhrif

t.d. geta fulltrúar okkar vælt mismunandi mikið áður en þaggað verður niður í þeim - við gætum líka ráðið því hvort við skrifuðum niður hvaða skip frá sambandslöndunum veiddu fiskinn á okkar fiskimiðum - við getum sem hægast bloggað um yfirganginn - ráðherrar gætu ákveðið sjálfir hvort þeir mættu í veislur eða ekki - nema því aðeins að þeim verði skipað að mæta - nú eða mæta ekki.

Eigendur skipanna gætu líka ráðið því hverjum þeir seldu skipin - nema því aðeins að sambandið ákveði fyrir þá hverjir eigi að kaupa - nú eða þeim verði bannað að selja skipin -

þannig að eins og sjá má - þá myndum við ráða heilmiklu. Eða þannig.


mbl.is Hugmyndir um áhrif stórlega ýktar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

JAFNRÉTTI KYNJANNA

Er það rétt sem mér virðist koma fram í þessari frétt að af 12 manna hópi séu 3 karlar?

Það er ekki að ástæðulausu að sífellt sé verið að kvarta yfir ofríki karla. Eða hvað?


mbl.is Gróa nýr formaður FSH
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Falla fyrstir

Þá er það á hreinu -

afleiðingarnar eru enn að koma í ljós vítt og breitt um heiminn -

Þegar Geir og Ingibjörg voru að skipuleggja heimshrunið voru þau með langtímamarkmið og þar var allur heimurinn undir -

Ef einhver véfengir þetta ættu þeir hinir sömu að gera sér grein fyrir því að aðalfulltrúi breta og hollendinga - steingrímur j hefur barið á þjóðinni í refsingarskyni og jóhanna hin heilaga dansar línudans ( á íslensku ) á milli aðildarumsóknar og haturs á Sjálfstæðisflokknum.

VG þekkir uppruna hrunsins - hann liggur hjá Geir Haarde - og brátt gráta Grikkir. 


mbl.is Grikkir falla fyrst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SÁ HEFUR FYLGST MEÐ

Peter Schliff hefur heldur betur fylgst með framferði ríkisstjórnar Geirs H Haarde þegar hún var að rústa fjármálakerfi heimsins 2008.

 


mbl.is Greiðslufall ríkja yfirvofandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 25. febrúar 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband