SÝNDARMENNSKA
2.3.2010 | 10:59
![]() |
Norðmenn eiga að aðstoða Íslendinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
HLUTLEYSI ??? EIGINHAGSMUNASEMI????
2.3.2010 | 07:45
Magnað -
þegar Mogginn sagði upp "rétt þenkjandi" fréttamönnum hneykslaðist formaðurinn ógurlega -
þegar Fréttablaðið sagði upp ritstjóranum fyrirvaralaust heyrðist ekkert frá formanninum en hún sá ástæðu til þess að setjast með arftaka hans í viðtal í Kastljósi ( minnir mig)
Það er ekki sama hver segir upp - Á svo að taka mark á "fréttum" frá formanninum?
Vefritið er - skv. lýsingu - vettvangur þriggja hópa - vinstrisinna - umhverfissinna og jafnréttissinna-
semsagt þriggja óskyldra hópa - gott að hafa fjölbreytni -
![]() |
Smugan.is hefur göngu sína eftir að hafa legið í dvala |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
ÞETTA ER ALLT AÐ KOMA
2.3.2010 | 07:36
Stjórnin er á hárréttu róli -
Allt að dragast saman - frábært - og ef Fjallkonan Svandís fær að ráða þá verður enn meiri samdráttur og allt keyrt í lítinn óleysanlegan hnút þar sem atvinnuleysi og samdráttur ræður ríkjum - = kommúnistastjórn eins og þær gerast bestar - búið að skera allt niður í menntakerfinu - þeir sóunarsjóðir sem búið var að koma á aflagðir - skólar sem mokuðu peningum í kennsluefni fá núna að gjalda fyrir hrokann - Námsgagnastofnun (Ríkisútgáfa námsbóka) verður eina "forlagið" sem skólarnir fá að versla við ( reyndar eru grunnskólar mjög nálægt þeirri stöðu í dag sem betur fer) - og brátt verður bara hin eina sanna ríkislesbók - eina sanna ríkisstrærðfræði þar sem útkom dæmanna fer eftir vilja stjórnvalda á hverjum tíma -
Allt á réttri leið -
![]() |
Fimmtungi færri flutningaskip til Faxaflóahafna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
FRÁBÆRT - KOMINN TÍMI TIL
2.3.2010 | 07:26
Þetta eru góð tíðindi og í samræmi við stefnu stjórnvalda.
Þessi fyrirtæki hafa þvælst fyrir niðurrifi stjórnarinnar sem má ekki til þess hugsa að landið rísi úr öskustónni -
Þessi fj...... fyrirtæki hafa mokað fé í ríkissjóð og er mál að linni.
Seinagangur almennings við brottflutning af landinu er áhyggjuefni - það vantar fleiri tóma íbúðir og svo er það ekki ásættanlegt að fólk sem hefur vinnu komi sér ekki á atvinnuleysisskrá.Þar sem þetta rekst á verður SJS að tala fyrir brottflutningi í 4 daga eina vikuna og 3 daga þá næstu. Síðan verður hann að nýta hina daga til þess að tala fyrir því að fólk komi sér á atvinnuleysisskrána -- hann fer létt með þetta. Allt miðar þetta að því að kommúnisminn verði allsráðandi hér á landi enda 8 uppalningar Alþýðubandalagsins í ríkisstjórn.
![]() |
Lagabreytingar fæla á brott skattgreiðendur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
SJS - STÓRI SANNLEIKUR OG GÓLFTUSKUR
2.3.2010 | 07:17
Jæja gott fólk - þá er hann kominn
Stóri sannleikur og Stóri sáttmáli liggur í loftinu - Steingrímur sagði það.
Þá er bara að halda áfram að taka fyrirtækin undir verndarvæng ríkisins og setja þau í samkeppni við einkafyrirtækin þangað til þau verða líka tekin undir verndarvæng ríkisins.
Svo þarf að klára að fæla hugsanlega erlenda fjárfesta í burtu ( ef einhverjir eru eftir sem vilja fjárfesta hér á landi ) rústa sjávarútveginum og afmá landbúnað í leiðinni - ganga í evrópumafíuna og gerast gólfklútar nýlendukúgaranna.
Og þá verður allt svo gott -
![]() |
Fundur fyrir hádegi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)