Jæja já -

940 milljarðar ????? Hann ætti að hafa efni á því að ráða lögmann -
mbl.is Ætlar að stefna skilanefnd Glitnis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara róleg - bara róleg

Eru þetta ekki bara einhverjir jarðskjálftar að læðast um ofanjarðar? Og þó - þá væru þeir varla kallaðir jarðskjálftar - frekar ofnjarðarhristarar.

Hvar eru vísindamennirnir þegar maður þarfnast þeirra?


mbl.is Vitlaust veður á Mýrdalsjökli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Vísindamenn"

Núna eru jarðskjálftar farnir að "læðast austur á bóginn í áttina að Goðabungu".

Læðast ?? Enn hef ég ekki upplifað jarðskjálfta sem hafa læðst eitt eða neitt.

En ef þeir eru að þessu ( hvernig sem það má nú vera ) er þá ekki með sömu skynsemi hægt að standa fyrir þeim og reka þá til baka?  Láta þeim bregða dálítið?? Ha??  Eða hvað??

 


mbl.is Jarðskjálftar læðast austur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðurstyggð

Hafi stúlkan rifnað svona illa við nauðgunina hlýtur nauðgaranum að hafa verið ljóst hvað var að gerast.

Sennilega ekki haft neinn áhuga á því - bara að ljúka sér af.

Hvort sem stúlkan var 12 eð 13 ára er þetta allt einn viðbjóður og bannið sem sett var á á sínum tíma í Jemen fyllilega réttmætt. Það var síðan fellt úr gildi

Stangist bannið á við Kóraninn er mikið að - sé það keppikefli fólks á þessu svæði sem á hvorki til hnífs eða skeiðar að eignast sem flest börn þá vantar mikið í fræðsluna.

En gleymum því ekki að þessi samfélög eru að leggja Evrópu undir sig og flytja með sér sína siði og venjur - hafa ekki áhuga á okkar siðum og venjum enda líta þau á okkur sem trúleysingja og/eða trúvillinga.

Verum því á verði.

 


mbl.is Hjónabandið varð 13 ára stúlku að aldurtila
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að frumkvæði Sjálfstæðisflokks

og með samþykki formanna allra flokka var þessi nefnd sett á laggirnar.

Það hefur því verið undarlegt að lesa ásakanir um að flokkurinn haf staðið í vegi fyrir og/eða tafið útkomu skýrslunnar á bakvið tjöldin.

Nú þegar skýrslan birtist ættum við öll að draga djúpt andann og halda ró okkar - skoða skýrsluna og draga af henni lærdóm.

Margir verða til þess að dæma og vera með upphrópanir -

Einhversstaðar stendur - dæmið eigi svo þér verðið eigi sjálfir dæmdir.

Kínverjar segja - dæmdu ekki náunga ( nágranna ) þinn fyrr en þú hefur gengið í sporunum hans ( skónum hans).


mbl.is Munu tjá sig sem minnst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýna fram á hættuna???????????

Hefði þá ekki verið rétt hjá þeim að sýna leiðangurinn snúa frá hrauninu?????
mbl.is Tilgangurinn að sýna fram á hættuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 9. apríl 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband