Er það lögmaður sem talar svona?

Gestur segir í samtali við mbl.is að úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur um handtökuskipunina hafi verið kveðinn upp að Sigurði fjarstöddum og án vitneskju hans. Sigurður hafi fyrst heyrt af málinu í fjölmiðlum og ekki fengið endurrit af úrskurðinum fyrr en á fimmtudeginum 13. maí. Strax þá hafi úrskurðurinn verið kærður.

Er ástæðan ekki sú ð Sigurður hundsaði tilmæli saksóknara um að mæta - setti skilyrði fyrir mætingu og var ekkert nema hrokinn ????

ÞAÐ VAR/ER RÍK NAUÐSYN TIL ÞESS AÐ GEFA ÚT HANDTÖKUSKIPUN hvað sem lögmanninum finnst.

Tugir ef ekki hundruðir fjölskyldna eru í stórkostlegum vandræðum vegna þess að það treysti Sigurði og keypti hlutabréf í bankanum - bréf sem reyndust vera ónýt - OG ÞAÐ VISSI SIGURÐUR ÞEGAR HANN VAR AÐ BLEKKJA FÓLK TIL VIÐSKIPTANNA.

Þjóðfélagið allt er í sárum vegna aðgerða KB Tvíhöfða.

Svo vill Hreiðar Már fá að fara úr landi - Hann á ekkert að fá að fara - ef dómur fellur honum í vil getur hann farið fjandans til en ef ekki þá á hann að hefja afplánun strax.

O.J.Simpson slapp vegna þess að hann hafði snjalla lögmenn - þessir þjóðfélagsmorðingjar eiga ekki að sleppa þrátt fyrir Gest Jónasson og aðra lagaflækjutindáta.


mbl.is Handtökuskipun alltof harkaleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 19. maí 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband