Er það frétt?????????

Hefur þessi kona ekki komið af fjöllum í flestum málum ??

Ekki vissi hún neitt um mál Seðlabankastjórans - aðgerðir lögmannsins eða starfsmanna ráðuneytisins - afleiðingar skattahækananna - afleiðingar aðildarumsóknarinnar að ESB - hún veit ekkert um afstöðu 70% þjóðarinnar sem er á móti aðild -

hún veit ekkert um vilja þjóðarinnar - einstaklinga og fyrirtækja sem vilja koma hjólum atvinnulífsins í gang - Hún veit ekkert um líðan þeirra tugþúsunda sem eru á atvinnuleysisbótum - hún veit ekkert um líðan fólksins sem mun tapa aleigunni eftir nokkrar vikur í samræmi við Viljayfirlýsinguna sem hún og SJS - Gylfi og Trotskyistinn í Seðlbankanum undirrituðu.

Hún veit ekki heldur að þjóðin vill að hún segi af sér - strax.


mbl.is Vissi ekki um lögfræðiálitið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjartsýni - víst förum við inn - eða hvað????

Í dag er staðan þannig að um 70% landsmanna segja NEI.

Eftir að milljarðatugir ESB hafa fengið að grassera í áróðurmaskínu Samfylkingar ( þar með Jóns Ásgeirs ) munu landsmenn sjá að "þetta er það eina rétta".

Það nægir ekki að Mogginn sé á móti - það nægir ekki að 90% Sjálfstæðisflokksins sé á móti - það nægir ekki að ÍNN sé á móti - það nægir ekki að hluti VG sé á móti - ofbeldiskraftur RÚV - Fréttablaðsins og annara miðla Sf og Jóns Ásgeirs munu heilaþvo nógu marga landsmenn til þess að snúa þessu við - NEMA því aðeins að andstæðingar landsölunnar taki höndum saman og verji landið.

Svo má spyrja - hversvegna - þegar þjóð hefur hafnað aðild að ESB - þarf að kjósa aftur og aftur þar til "viðunandi " ( já) niðurstaða fæst??

Ég heyrði á ÍNN  góða samlíkingu hjá (ef ég man rétt ) Guðlaugu Þór- ef knattspyrnuleikur fer ekki samkvæmt vilja einhverra ráðamanna þá á bara að endurtaka leikinn.

Það er kominn tími til þess að við andstæðingar inngöngunnar stofnum okkar VERJUM ÍSLAND - áður en það verður of seint.


mbl.is Gætu „tekið Noreg á þetta"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 10. ágúst 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband