Þjóðkirkjan neitar
9.8.2010 | 09:23
Þjóðkirkjan er illu heilli innan ríkisins og ber ranglega nafnið þjóðkirkja -
Núna er þessi stofnun að neita að fara að fyrirmælum ríkisins sem fjármagnar þennan rekstur.
Hvernig væri nú að Sérlegur saksóknari neitaði að fara að fjárlögum og heimtaði meira fé ? Því væri betur komið hjá því embætti en ókristnum biskupi "þjóðkirkjunnar".
Nú svo gæti ríkislögreglustjóri neitað að fara að fyrirmælum ráðherrans -
Hroki kirkjunnar er tilkominn vegna þess útbreidda misskilnings að prestar og kirkjan í heild sinni sé eitthvert fyrirbæri sem sé hafið yfir almenning í landinu. Ef prestur tjáir sig um einhver þjóðfélagsmál á það vera einhver æðri boðskapur. þessi fáránlega afstaða kemur í veg fyrir eðlilega gagnrýni á orð þessa fólks sem - þegar upp er staðið - er ekkert annað en eiginhagsmunapotarar (með sárafáum undantekningum) breyskir einstaklingar alveg eins og við hin.
![]() |
Ekkert svigrúm til að hlífa kirkjunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fáránlega framsett frétt
9.8.2010 | 08:50
Campell sagði við réttarhöldin - þar sem mér skilst að hún sé VITNI - að hún hafi látið aðstoðarmann Mandela hafa demantana daginn eftir og hann hefur staðfest það - sem og að hafa haft þá undir höndum eftir það - allt þar til hann afhenti ( að mig minnir ) lögreglunni demantana.
Samkvæmt þessari frétt mætti halda að Campell væri sakborningur.
![]() |
Mia Farrow ber vitni í máli Taylors |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)