Doctore á biskupsstól

 

strax -


Á að víkja

Karl virðist ætla að halda sig við það að Sigrún Pálína hafi sagt ósatt um samskipti þeirra -

forveri hans hélt fram því sama

Þarf aðra stórsprengju til þess að Karl viðurkenni ósannindi sín? Þótt af annari ástæðu sé þá liggur það á borðinu að forverinn laug - gróflega  -

Fyrr eða síðar mun það koma í ljós að Karl gerði það líka - hann á eftir - þótt of seint verði - að viðurkenna lygi sína.


mbl.is Finnst koma til greina að biskup stígi til hliðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hin tæra mistakastjórn.

Krónprinsinn kominn í skjól í viðskiptaráðuneytinu en tennurnar dregnar úr honum með því að flytja efnahagsmálin til Steingríms.

Niðuræging Jóhönnu er algjör -

Maðurinn sem hún bolaði út úr stjórn á sínum tíma að koma aftur inn - hún sjálf með allt í rugli og veit ekkert hvað er ð gerast í stjórninni - ekki einu sinni í hennar eigin ráðuneyti - segir hún sjálf.

Mistakakrónprinsinn líka niðurlægður en RÁÐHERRANN Jón Bjarnason situr áfram maðurinn sem Jóhanna vill helst af öllu sjá hverfa út í hafsauga.

Þetta hljóta að vera skýr skilaboð til hennar um að láta sig hverfa.


mbl.is Fjórir á leið úr ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landráð.

Stefna ríkisstjórnarinnar ( nema Katrínar Júlíusdóttur ) er sú að setja Suðurnesin á hausinn með því að koma í veg fyrir upbyggingu - atvinnuskapandi verkefni - koma í veg fyrir allt sem skapar tekjur -

Gildir þá einu þótt ríkissjóður tapi milljörðum í leiðinni -

Þetta Dreamlinerdæmi er lítið - en samt - margt smátt gerir eitt stórt.

Þetta gæti skilið eftir einhverja þúsundkalla á Suðurnesjunum - það verður ekki liðið -Hvar er SJS - nú eða Svandís - þessi vél mun menga -

Á að láta þetta yfir þau tvö ganga?

 


mbl.is Dreamliner á leið til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 1. september 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband