Ha - bíddu nú við

Kristján út - Guðbjartur inn - vegna fækkunar ráðherra.

Kristján er 1 - Guðbjartur er 1 - sé ekki fækkun í þessu -

Eitthvað fleira hlýtur að hafa verið gert hjá Sf - utanflokksráðherrarnir út - sem og Álfheiður fyrir Ögmund - fækkunin bara utanflokksráðherrarnir -

kynjahlutfall í ráðherraliðinu hefur þá væntanlega raskast - má það skv. Sf - ? að vísu var Steinunni Valdísi fórnað fyrir Mörð en ---

Jóhanna - Katrín Júlíusdóttir - Össur - Guðbjartur - Árni Páll -

SJS - Jón - Ögmundur - Katrín Jakobsdóttir - Svandís -

6 karlar 4 konur


mbl.is Tillaga um breytingar samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var Steingrímur ekki að gelda Árna Pál?

Tók hann ekki efnahagsþáttinn í fjármálaráðuneytið?
mbl.is 20 mál sett á oddinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórir steypubíla

Skv mínum upplýsingum taka venjulegir steypubílar um 7 rúmmetra -

Stóru bílarnir sem aka steypu í brúna munu taka rúmlega 70 rúmmetra.

Hvaða stöð er með þessi ferlíki?

Skv. fréttinni er þá hver bíll með rúmlega 180 tonn af steypu.

Þetta hlýtur að fara illa með vegina - eða hvað?


mbl.is Steypa síðari hluta Hvítárbrúar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engar áhyggjur - olíufélögin bæta skaðann.

Eða er það ekki annars?
mbl.is Aukaefni í bensíni olli gangtruflunum í bílum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að sjálfsögðu eiga þau að segja af sér!

Að vísu brutu þau ekkert af sér - en - bloggarar krefjast afsagnar og almenningur - æstur upp af misvitrum blaðasnápum Jóns Ásgeirs heimtar afsagnir.

Prestlingur einn heimtaði afsögn Gísla Marteins á þeirri forsendu að ef reglur þingkosninga hefðu gilt í borgarstjórnarkosningum hefði hann farið niður um eitt sæti.

Það eru fleiri "trúaðir" en presturinn. Fólk vill að Þorgerður Katrín taki ekki sæti á þingi og að Guðlaugur Þór segi af sér -

Guðlaugur Þór á að segja af sér þar sem hann fékk styrki sem voru í samræmi við ruglið á sínum tíma - en þau trúuðu vilja refsa honum á þeirri forsendu að þær reglur gildi ekki lengur.

Steinunn Valdís var hrakin af þingi - hún varði fjölskyldu sína með þeirri afsögn - og af einhverjum ástæðum sem ég þekki ekki réðist samflokksmaður hennar í borginni gegn henni og lyddan Mörður Árnason beið á hliðarlínunni og glotti - og tók sæti á þingi.

Enginn minntist á Dag B Eggertsson sem hlutfallslega fékk hærri styrki en Steinunn.

Þrátt fyrir að eiginmaður Þorgerðar - Kristján "OKKAR" Arason ( eins og hann var kallaður þegar hann bar hróður landsins út um lönd ) hafi tapað meira fé (afrakstur atvinnumennskunnar m.a.) þá á hún að skammast sín og á ekki að taka sæti á þingi. Vantar ekki eitthvað í þessa mynd?

Er ekki komið nóg af pólitískum aftökum? Á meðan við erum upptekin af slíkri iðju er ekki verið að nýta tímann til uppbyggingar.

 

 


mbl.is Sáttir við Steinunni Valdísi en ósáttir með Þorgerði Katrínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 2. september 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband