Hrokafullir Mafíósar. Fékk spark eftir 50 ára viðskipti.
8.3.2011 | 12:08
Nýju Mafíósarnir í bönkunum - þessir sem öllu ráða og lúta ekki reglum - sáu ekki ástæðu til þess að mæta hjá þingnefnd.
Ríkið er að moka fé í bankana - fyrst Mafíósarnir haga sér svona á að endurskoða samstarfið strax og loka fyrir alla fyrirgreiðslu til þeirra.
Félagi minn sem er búinn að vera viðskiptavinur Landsbankans í 50 ár og alltaf staðið í skilum fékk neitun á smáfyrirgreiðslu vegna þess að hann vildi taka ákveðna tegund af láni - sem stendur til boða. Starfsmaðurinn vildi að hann tæki annarskonar lán - mun óhagstæðara og lok málsins urðu þau að kúnninn gekk út með spark í rassinn eftir 50 ára viðskipti sem bankinn hefur klárlega ekki tapað á.
Þetta minnir á gamla tíma - mjög gamla.
![]() |
Bankastjórarnir mættu ekki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)