ISLAMSVÆÐING HOLLANDS

Það eru margir sofandi fyrir Islamsvæðingu Íslands.

Meginþorri Múslima er vissulega hið besta fólk - leiðtogar þeirra vilja hinsvegar Islamsstjórnir - trúarleiðtogar þeirra ráða ferðinni - og þar sem fólk sest að í t.d. Kristnum ríkjum skal öfgastefnu Islam haldið á lofti - ungar konur eru myrtar fyrir það að verða ástfangnar af Kristnum karlmanni t.d.-

Múslimar líta niður á okkur og telja okkur trúvillinga - og Kristnar konur ( eða þær konur sem eiga uppruna sinn í Kristnum ríkjum ) eru hórur í þeirra augum.

Eitt skil ég ekki - hversvegna sækir fólk frá Múslimaríkjum í það að setjast að á vesturlöndum????

Innan um hórur og aumingja. - Nema því aðeins að þau séu komin til þess að bjarga okkur og leiða okkur inn í sæluríki ´Múslima.

Fyrir mig - nei takk -


mbl.is Frelsisflokkurinn eykur fylgi sitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Snorri Óskarsson

Samkvæmt fæðingartölum þá nær Evrópa ekki að sporna við útbreiðslu Islam svo Evrópa verður að meirihluta til Islömsk 2050. Þýskaland missir kristna meirihlutann 2024 og Frakkland sömuleiðis. Kristnir menn hafa ekki þorað að viðurkenna vandann til að verða ekki sakaðir um fordóma og þröngsýni. En að öllum líkindum er þessi kosningasigur sá síðasti sem "kristnir" fá að státa sig af í Hollandi. Næst verða Múslimir svo fjölmennir að þeir taka völdin og samþykkja Sharíalög yfir Holland.

Haft er eftir Gaddafi að hann vegsamar Allah fyrir miskunn hans að ekki þurfi að sveifla sverði til að Evrópa verði Islömsk innan skamms (2050)

Trúin á Jesú Krist er eina svarið við þessum vanda og verst væri ef við efldum hatur á þessu fólki. Það þarf einnig að taka við Jesú sem friðþægingu sinni. 

Snorri í Betel

Snorri Óskarsson, 4.3.2010 kl. 14:18

2 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Snorri: þetta er hreinlega rangt, ein og svo margt annað sem þú lætur út úr þér. Ég leyfi mér að giska á að þú hafir látið blekkjast af áróðursmyndbandinu 'Muslim demographics'. Ég verð að fá að hryggja þig með því að þær "upplýsingar" sem þar koma fram eru kolrangar, eins og lesa má um t.d. hér og hér.

Þú segir:

En að öllum líkindum er þessi kosningasigur sá síðasti sem "kristnir" fá að státa sig af í Hollandi. Næst verða Múslimir svo fjölmennir að þeir taka völdin og samþykkja Sharíalög yfir Holland.

 Múslimar eru um 5% Hollendinga. Þú gerir ráð fyrir því að þeir verði (á fjórum árum?) "svo fjölmennir að þeir taka völdin". Mér þætti gaman að sjá stærðfræðina á bak við þá fullyrðingu.

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 5.3.2010 kl. 15:46

3 Smámynd: Einar Jón

Hvað þekkirðu eiginlega marga múslima?

Þar sem ég bý komu margir frá Íran til að losna við búrkurnar og geta fengið sér í glas, ekki til að dreifa vitleysunni. Lýsir það nokkru nema fáfræði að alhæfa svona um alla sem fæddust inn í ákveðna trú?

Einar Jón, 5.3.2010 kl. 17:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband