FRELSI
5.3.2010 | 07:03
Það er undarlegt að standa í þeim sporum að þjóðin skuli þurfa að verja land og sjálfa sig fyrir því fólki sem var kosið til þess að gegna því hlutverki.Heggur sá er hlífa skyldi.
Þingmeirihluti Kommúnista og hálfkommúnista berst með oddi og egg fyrir málstað nýlendukúgaranna breta og hollendinga.
Minnihlutinn klórar í bakkann með aðstoð þjóðarinnar og hefur náð ótrúlegum árangri. Ekki skal þætti 3 VG þingmanna gleymt - án þeirra hefði ekki verið unnt að stöðva þrælasamning Svavars og co sem gerður var fyrir þessa nýlendustjórn sem starfar hér fyrir breta og hollendinga.
Sjálfstæði lands og þjóðar hangir á spýtunni - og í hvert sinn sem eitthvað þokast áfram rísa sjs - og js upp og öskra á móti og svo tók Gylfi undir gargið í gær.
Frelsi almenning hangir á spýtunni hér - OG EINNIG FRELSI ALMENINGS Í EVRÓPU - fólks sem hugsar fjárglæfra"snillingum" í sínum löndum þeygjandi þörfina - fólkið bíður eftir því hvað við gerum -
Sýnum umheiminum að hér búi frjálst fólk sem lætur ekki kúga sig til hlýðni við ofbeldisþjóðirnar -
Gefum fólki í Evrópu dug - kjark og þor til þess að feta í okkar fótspor með því að segja NEI NEI NEI við kúgun -
GEFUM OKKUR VON - GEFUM EVRÓPU VON
Allra augu á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.