Gasalegar áhyggjur - bara alveg að fara á taugum.
9.3.2010 | 02:08
Mikið lifandis skelfing erum við Íslendingar vont fólk - fyrst af öllu viljum við ekki borga annara skuldir - svo viljum við ekki borga það sem bretar og hollendingar borguðu í okkar nafni án heimildar -forsetinn neitar að staðfesta að það megi nauðga þjóðinni - svo fer þjóðin í atkvæðagreiðslu og hafnar því að vera nauðgað af helstu nýlendukúgurum álfunnar - og svo kemur þetta vonda Íslenska fólk og vill bara ekki vera memm.
vovovovovoða voða vont fólk - sennilega er þetta bara sjálfstæð þjóð sem vill halda fullveldi sínu - landi sínu - menningu sinni og auðlindum sínum - þar á meðal tungunni. ÆÆ göngum með svarta borða um handleggin og samhryggjumst Evrópusambandsforkólfunum - eða þannig - kanski bara borða í fánalitunum.
Áhyggjur af áhugaleysi Íslendinga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.