Skætingslaust
27.3.2010 | 14:35
Er ekki kominn tími á að Jóhanna sýni ábyrgð - boði til kosninga - helst sama dag og sveitastjórnarkosningar -
Yfirlýsing Jóhönnu er ekkert annað en vantraust á VG - vantraust sem þjóðin er búin að lýsa yfir.
Kjósum til Alþingis í maí - fáum meirihlutastjórn - þetta er komið langt útyfir allt sem heitir pólitík - þetta er farið að snúast um framtíð þjóðarinnar.
Ósamstaða VG veikir stjórnina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég ætti í mjög miklum erfileikum með það að kjósa ef kæmi til kosninga á morgun. Mér finnst það ótrúlegt til dæmis hversu margir virðast ætla að kjósa sjálfstæðisflokkinn þrátt fyrir lykilstöðu þeirra í öllum okkar vandræðum í dag og að svo virðist spilliingu á spillingu ofan. Framsóknarflokkurinn virðist vera í svipuðum sporum og stóri bróðir sinn. Þá eru bara eftir stjórnar flokkarnir tveir og ekki vil ég kjósa þá eða hvað?
Sumir virðast þó vera í engum vafa með þetta, kjósa bara "liðið" sitt eins og alltaf sama hvað bjátar á.
Kristján Guðmundsson (IP-tala skráð) 27.3.2010 kl. 14:46
Sjálfstæðisflokknun var refsað grimmilega í síðustu kosningum -
Hann fékk allt á sig - Lehmanns banka - heimsbankahrunið hrunið hér heima - afleiðingar þess að hér giltu Evrópureglur - - hann virðist hafa verið einn í stjórn í 18 ár því hvorki Framsókn né Samfylkingu var refsað ( flokkarnir sem voru meða banka og eftirlitsmálin á sinni könnu ) og Samfylkingin fékk hreinlega aukningu.
Það er engum blöðum um það að fletta að Sjálfstæðisflokkurinn átti sinn þátt - en það áttu hinir líka -
Er skynsamlegt að hafna flokki sem hefur leitt allar þær breytingar sem hafa verið gerðar t.d. á Icsave?? Er skynsamlegt að refsa flokknum áfram þrátt fyrir að hann sé ini flokkurinn sem hefur virkilega lagt fram heildstæðar hugmyndir til úrbóta??
Margir Sjálfstæðismenn kusu ekki "liðið sitt" í síðustu Alþingiskosningum.
Fólk virðist samt vera að átta sig á því að Sjálfstæðisflokkurinn er það sameiningarafl sem landið þarfnast - Vinstri glundroðinn er ekki að virka.
Ólafur Ingi Hrólfsson, 27.3.2010 kl. 18:36
Sammála því að kosið verði til þings í vor.
Gunnar Heiðarsson, 27.3.2010 kl. 22:34
ég er að kafna úr hlátri við lestur á athugasemd nr 2. Laddi gæti aldrei sagt betri brandara
Hamarinn, 28.3.2010 kl. 00:32
Í boði hverra er Icesave????
Hamarinn, 28.3.2010 kl. 00:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.