Er það frétt?????????
10.8.2010 | 12:42
Hefur þessi kona ekki komið af fjöllum í flestum málum ??
Ekki vissi hún neitt um mál Seðlabankastjórans - aðgerðir lögmannsins eða starfsmanna ráðuneytisins - afleiðingar skattahækananna - afleiðingar aðildarumsóknarinnar að ESB - hún veit ekkert um afstöðu 70% þjóðarinnar sem er á móti aðild -
hún veit ekkert um vilja þjóðarinnar - einstaklinga og fyrirtækja sem vilja koma hjólum atvinnulífsins í gang - Hún veit ekkert um líðan þeirra tugþúsunda sem eru á atvinnuleysisbótum - hún veit ekkert um líðan fólksins sem mun tapa aleigunni eftir nokkrar vikur í samræmi við Viljayfirlýsinguna sem hún og SJS - Gylfi og Trotskyistinn í Seðlbankanum undirrituðu.
Hún veit ekki heldur að þjóðin vill að hún segi af sér - strax.
Vissi ekki um lögfræðiálitið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Jóhann er greinilega mikið fyrir fjallgöngur. Það er vissulega hollt áhugamál, en vinnan má ekki gleymast.
Hún er nú oft alveg hissa á öllu því sem gerist í stjórnsýslunni, fyrir einhverjum mánuðum var hún stórhneyksluð eftir að hafa séð í fjölmiðlum fréttir um hegðun þeirra sem stjórna bankakerfinu ríkisrekna.
Ætli hún sé ekki alveg steinhissa á því hversu illa þessari ríkisstjórn gengur að stjórna þessu landi?
Hún sér það eflaust í fjölmiðlunum.
Jón Ríkharðsson, 12.8.2010 kl. 21:23
Hún sér þá væntanlega líka í fjlmiðlum að ríkisstjórnin hefur ítrekað fjarlægt fullorðna konu sem mótmælti við Stjórnarráðið -
Hún truflaði vinnufriðinn!!!
Ekki þótti samstarfsfólki hennar í VG að verið væri að trufla vinnufriðinn í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og SF -
En það eru breyttir tímar og ein fullorðin kona orðin ógn stjórnarinnar.
Ólafur Ingi Hrólfsson, 13.8.2010 kl. 05:38
Ég gæti trúað því að Jóhanna hafi horft hneyksluð á fréttirnar varðandi konuna sem var fjarlægð fyrir saklaus mótmæli, og sagt við Jónínu sína; "af hverju er verið að handtaka vesalings konuna, ég er stórhneyksluð á þessari ríkisstjórn". Jónína horfir brosandi á sína ektakvinnu og er ekkert að ergja hana með því að minna hana á sína þátttöku í ríkisstjórninni.
Jón Ríkharðsson, 14.8.2010 kl. 17:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.