Unnið gegn ríkisstjórninni
8.9.2010 | 08:11
Þetta er alvarlegt mál -
Það var skipuð nefnd sem átti að staðfesta helstefnu ríkisstjórnarinnar gegn sjávarútveginum -
Svo kemur þetta bilaða fólk fram og vill samningaleið - heilbrigða skynsemi í aðgerðir í sjávarútvegsmálum.
Þetta stangast algjörlega á við annað sem stjórnvöld hafa gert þannig að svona skynsmishugmyndir þarf að kæfa - strax-
Með sama hætti og stjórnin er að ganga frá Suðurnesjamönnum ( eins og reyndar landsmönnum yfirleitt ) þá ætlar hún að ganga frá sjávarútveginum.
Á sínum tíma var sjávarútvegurinn sá grunnur sem þetta þjóðfélag byggði á - síðan komu peningasnillingarnir - núna er sjávarútvegurinn aftur gífurlega mikilvægur þáttur í uppbyggingunni - ef hún fær að fara í gang - þannig að andstaða stjórnarinnar er eðlileg - samkvæmt þeim vinnubrögðum sem stunduð eru við ríkisstjórnarborðið.
Stjórnin vill ekkert annað en niðurrif.
Skoðar alla kosti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
sammála hér;
"Á sínum tíma var sjávarútvegurinn sá grunnur sem þetta þjóðfélag byggði á - síðan komu peningasnillingarnir - núna er sjávarútvegurinn aftur gífurlega mikilvægur þáttur í uppbyggingunni - ef hún fær að fara í gang - þannig að andstaða stjórnarinnar er eðlileg - samkvæmt þeim vinnubrögðum sem stunduð eru við ríkisstjórnarborðið.
Stjórnin vill ekkert annað en niðurrif."
Jón Snæbjörnsson, 8.9.2010 kl. 09:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.