SJS talar - ÓN talar -
18.9.2010 | 17:03
Steingrímur - sá sem fyrrum var baráttumaður - er búinn að vera fyrir löngu - brotinn og bugaður -
Það er ekki nóg að gagnrýna SJS fyrir málæðið - það er hans aðalsmerki - Það sem Ólöf og hennar fólk þarf að gera er að leggja fram raunhæfa valkosti - gefa fólki færi á að sjá stefnu Sjálfstæðisflokksins út úr þessum málum.
Það þýðir ekkert fyrir andstæðinga flokksins að öskra hrun hrun hrun - Bankahrunið var ekki búið til hér - en það þýðir heldur ekki fyrir Sjálfstæðisflokkinn að segja - vont vont og vitlaust en leggja ekki fram raunhæfar tillögur til úrbóta.
Flokkurinn vill Icesave fyrir dóm - gott - gera það - en hvað með öll hin málin? Skattahækkanir - verðhækkanir - kjaraskerðingarnar - hvaða tillögur er Sjálfstæðisflokkurinn með í þeim þáttum?
Óvarlegt að tala svona | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sjálfstæðisflokkurinn hefur engar tillögur, enda gjörsamlega vanhæfur til nokkurra verka, eins og sést best á óstjórninni í Reykjanesbæ.
Bankahrunið var víst búið til hér, og það af sjálfstæðismönnum með dyggri aðstoð framsóknarmanna.
Elías Hansson, 18.9.2010 kl. 21:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.