Uppreisn ---- ferill SJS í Icesave

Uppreisn, verði kröfur samþykktar, október, 08:

Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri grænna, segir að það verði gerð uppreisn hér á landi verði gengið að kröfum Breta og Hollendinga um að Íslendingar greiði 600 milljarða króna vegna Icesave-reikninganna:

http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item233100/

 

STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON, stjórnarandstæðingur

Steingrímur segir að ef það sé rétt að þetta tvennt hangi saman sé það hrein fjárkúgun, október, 08:

Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna segist hafa heyrt þann orðróm að Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hafi sett sem skilyrði að mál vegna Icesave reikninga Landsbankans yrðu gerð upp að fullu við Breta og Hollendinga.
Steingrímur segir að ef það sé rétt að þetta tvennt hangi saman sé það hrein fjárkúgun. Ekki liggi fyrir að okkur sé lagalega skylt að gera það og þetta bendi til þess að verstu martraðir séu að rætast varðandi aðkomu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins:

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/10/22/likir_bretalani_vid_fjarkugun/

 

 STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON, stjórnarandstæðingur, janúar, 09:Framan af höfðu ýmsir ráðherrar ríkisstjórnarinnar uppi stór orð um að ekki kæmi til greina að Íslendingar létu kúga sig til uppgjafar í deilunni um hina lagalegu og þjóðréttarlegu ábyrgð landsins gagnvart Icesave-reikningunum. Eins og lögfræðingar hafa bent á var hlutverk innlánatryggingarkerfa samkvæmt reglum ESB/EES-svæðisins aldrei að takast á við allsherjar bankahrun, heldur aðeins fall einstakra banka.

Eins og undirritaður lýsti yfir við atkvæðagreiðslu um málið í þinginu 5. desember síðastliðinn lítur þingflokkur Vinstri grænna á samninginn sem riftanlegan eða ógildanlegan nauðungarsamning. Enn er hægt að afstýra stórslysi fyrir íslenska þjóð. Taki Tryggingarsjóðurinn hins vegar við skuldunum er ljóst að þá verður ekki aftur snúið: Þá hefur þjóðin endanlega verið skuldsett á grundvelli pólitískra þvingunarskilmála sem ríkisstjórnin hafði ekki dug í sér til að standa gegn:http://www.amx.is/adgerd.php?adgerd=pdf&id=7628

Svo mörg voru þau orð


mbl.is Niðurstaða vonandi í vikunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband