Endemis þvættingur kjaftaskúms.

Hann kann að koma fyrir sig orði - kunni það líka í fyrri hótanahrinum t.d. vegna Icesave þegar minnihlutinn ásamt nokkrum stjórnarsinnum - aðilum utan þings og að lokum forsetanum og þjóðinni tólkst að hnekkja landráðasamningi Svavars Gestssonar.

Margítrekaðar hótanri Steingríms og Jóhönnu reyndust vera innantómt gaspur - gaspur sem ekki var hlustað á og með því sparaði andstaðan þjóðinni hundruð milljarða.

ÞAÐ ER STJÓRNIN SEM HELDUR SKÚTUNNI Á STRANDSTAÐ -

Í hruninu steytti þjóðarskútan á skeri - í stað þess að losa hana af skerinu tók ríkisstjórnin sig til og keyrði hana lengra upp á skerið og setti hana kolfasta.

Það eina sem er rétt hjá Íslandsböðlinum er það að aðgerðir stjórnarinnar munu hafa "stórpólitísk og langvinn áhrif". Hann reynir að koma sökinni á aðra. Það er misráðið.  Það eru EKKI aðgerðir minnihlutans eða forsetans sem valda því. Né heldur andstaða þjóðarinnar - Íslandsböðullinn og skapanornin í stjórnarráðinu eiga þann pakka ásamt þeim sem styðja þau.


mbl.is „Mikil ábyrgð að velta steinum í götuna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála þér.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.12.2010 kl. 12:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband