Eignalaus vesalingur á framfæri foreldra.

Jón Ásgeir segist hafa tapað öllu í hruninu sínu. Líka því sem hann stal úr bankanum "sínum" og öðrum bönkum og sjóðum - að ógleymdum öllum fyrirtækjunum.

Það er slæmt að eiga ekki fyrir kókflösku því Steini vinur í kók þarf að selja kók. Þetta fljótandi.

Svo hlupu búálfar undir bagga og borguðu málskostnaðinn í USA og fjármagnsflutningarnir sem fara inn í hið flókna eignanet Jóns Ásgeirs - eru ekki til - enda skráðir á konuna hans. Hún hlýtur þá að geta gefið honum kók. Neme hennar peningar séu ekki heldur til. Þá er bara eitt eftir - fara í röð hjá hjálparstofnunum.

Pabbi getur séð um það.

Lárus Welding skuldar engum neitt og ljótt að ráðast á hann - auk þess sem Jón Ásgeir stjórnaði bankanum en ekki Lárus. Segir Lárus.

Fyrir hvað fékk hann þá hundruðir milljóna í laun?  Ég er til í svona djobb - gera ekki neitt og fá nokkra tugi milljóna á mánuði. Eina sem þarf að gera er að eyða e mailum frá Jóni.


mbl.is Kyrrsetning eigna verði felld úr gildi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Æjá aumingja mennirnir, við þurfum víst að fara að safna fyrir þá í sjóð. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.1.2011 kl. 10:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband