2 mannslíf = 3 mánuðir.
13.2.2009 | 05:33
Þau eru ekki hátt metin mannslífin á Íslandi.
Slys er slys - ofsaakstur + ölvunarakstur + fífldirfska í umferðinni er allt annað.
Ofsaakstur sem leiðir til banaslyss - tveir látnir - 3 mánaða inniseta.
Ökumaður neitar sök - minnisleysi -
Sannanir liggja fyrir - og hvernig á einhver sem man ekki að geta neitað sök -
Banaslys eru hörmuleg og fylgja þeim sem verða valdir að slíku alla ævi - byrði unga ökumannsins er þung en frumskilyrði er þó að viðurkenna staðreyndir.
Í ljósi þess að allt of mörg alvarleg slys ( það er líka hörmung að vera jafnvel fatlaður áratugum saman eftir slys ) verða hér á hverju ári er það alltaf undrunarefni hvað fjölmiðlar virðast gjörsneyddir öllum áhuga á því að stuðla að forvörunum með fréttaflutningi - þáttagerð og þátttöku í forvarnarstarfi annara. Umferðarstofa og fleiri hafa ötullega unnið að þessum málum í mörg ár. Þáttur fjölmiðla hefur verið sá að selja Umferðastofu - Sniglum og öðrum auglýsingatíma.
FJÖLMIÐLAFÓLK - þið hafið áhrif - beitið þeim áhrifum til þess að fækka slysum - ekki standa yfir líkamspörtum, blóði og dauða. Takið þátt í því að við komumst öll heil heim að kvöldi.
Ólafur I Hrólfsson
Sekur um manndráp af gáleysi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.