Svarthol

Svarthol gleypa allt sem að þeim kemur - eða flest -

Kok formanns VG er svo vítt og gleypir allt sem gleypa þarf til þess að hanga í ríkisstjórn að hvert einasta svarthol hvítnar af öfund yfir afköstunum. Niður í það kok hverfur allt - yfirlýsingar - stefnumál - grundvöllur VG - og pólitíska sjálfsvirðingin með.


mbl.is Búist við miklum átakafundi hjá VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Evran - krónan - ESB og AGS

Þessi frétt er fróðleg. Þrátt fyrir þá staðreynd að Írar hafi borið gæfu til að vera með starfhæfa ríkisstjórn en Ísland lánlausustu stjórn sem sögur fara af er staða Íra illyrmislega vond -

Írar njóti hins vegar ekki sveigjanleika fljótandi gengis sem geti dregið úr fjármálahögginu. Því sé hugsanlega betra að bera Írlands saman við Lettland, sem fékk aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins árið 2008. Lettar hafa eigin gjaldmiðil en tengja gengi hans við evru. Þess vegna hafi landið þurft að ganga í gegnum sársaukafullan samdrátt, þar á meðal mikla launalækkun. Hagkerfið dróst saman um nærri 20% á síðasta ári og atvinnuleysi komst í 23% þegar stjórnvöld reyndu að ná erfiðum markmiðum sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn setti.

Kúgunaraðgerðir AGS koma fram með fullum þunga hjá Írum vegna Evrunnar. Þeir ljósu punktar sem fylgja Evrunni vega fráleitt upp á móti göllunum.


mbl.is Gjaldmiðilsleið Íslands lokuð Írum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skjaldborgin komin í ljós ???

Það skyldi þó ekki vera - og kanski lausnirnar líka.
mbl.is Stjarna úr annnarri vetrarbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins - loksins - loksins

Betra er seint en aldrei.

Ég  hefði viljað sjá fleiri þingmenn á þessari þingsályktunartillögu.

Ég sakna margra þingmanna Sjálfstæðisflokks og allra þingmanna VG.

Ef eitthvað er að marka þingmenn VG þá styðja þeir allir þessa tillögu.


mbl.is Vilja höfða mál gegn Bretum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smánarblettur

Á sama tíma og semja á um tugmilljarða útgjöld vegna máls sem við eigum ekki að borga er Landspítalinn kúgaður -

Ekki má á milli sjá hvor er verri kúgari bretar gagnvart okkur eða  stjórnin gagnvart LHS.

Afföllin verða mun meiri en kemur fram í fréttinni - það starfsfólk sem eftir verður mun smátt og smátt gefast upp vegna álags. Þá verður fróðlegt að sjá ríkið hlaupa á eftir hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum til útlanda og grátbiðja um miskunn.


mbl.is Fækka um 70-100 starfsmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öllum ber skylda til að stuðla að vexti og viðgangi íslenskunnar

Væri það ekki ágætis innlegg að "hið opinbera" hætti að standa í vegi fyrir því þarfa verki?

Endurskoða sess hennar í grunnskólum landsins - gefa kennurum færi á að koma henni til skila á viðeigandi hátt. Breyta námsskránni.

Leggja skólunum til meira fé til námsgagnakaupa - fyrir utan Námsgagnastofnun.


mbl.is Öllum ber skylda til að stuðla að vexti og viðgangi íslenskunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kúgunarferlið heldur áfram.

Núna virðist stjórnarandstaðan ætla að kyngja því að greiða stórfé sem rök mæla gegn.

Það liggur ekkert fyrir um að við eigum að greiða þetta - annað en kúgun breta - hollendinga - ags og esb .

"Matsfyrirtækin" sem mátu bankana uppúr öllu valdi þegar þeir voru í raun og veru fallnir eru svo líka í kórnumm. - Og sjs reynir að fá aðila vinnunarkaðarins til þess að kúga stjórnarandstöðuna.

Og er að takast það.

Allt fyrir inngönguna í esb.

Ég hélt að yfirgnæfandi meirihluti Sjálfstæðisflokksins og VG væru á móti aðild - sem og fleiri á þinginu.

Mér virðist ég hafa haft á röngu að standa.


mbl.is Lausn jákvæð fyrir lánshæfismat
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Evrópufræðasetur Háskólans á Bifröst ????

Hvert er hlutverk þessa "seturs"?

Er líka til Asíufræðasetur ? Ameríkufræðasetur ? Austurlandafræðasetur ?

Ef ekki - hversvegna Evrópufræðasetur ?


mbl.is Hægðu á aðildarferlinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær borgarstjórnarfundur

Sat á pöllunum - tillögur Sjálfstæðisflokks um íbúalýðræðið - fínar - við bót ágæt -

Tillaga VG um bátamál - fín líka - einn fulltrúi esta flokksins vildi vísa þeirri tillögu rangrar nefndar en var leiðréttur og sætti sig við það.

Umræða um OR og framkomu borgarstjóra - borgarstjóri fór fram á það að borgarfulltrúar sýndu hver öðrum kurteysi - honum var bent á hans eigin ruddaskap í viðtölum þar sem hann er ólatur við að níða skóinn af fólkinu sem hann vill að sýni honum kurteysi.

Honum finnst hann sýna borgarfulltrúum virðingu - á milli þess sem hann rakkar þau niður í fjölmiðlum - eftir þessa gagnrýni nefndi hann ekki gagnkvæma virðingu - talaði reyndar ekki eftir það og fórst það vel úr hendi. Fyrir utan fýlusvip og taugaveiklun.

Dagur B tjáði sig líka og - í alvöru - var málefnalegur - þótt ekki væri ég sammála öllu sem hann sagði.

Þáttur Jóns nar í borgarstjórn er sorgarsaga - Yfirlýsingar hans í fjölmiðlum um það hvernig hann bjargaði OR voru reknar ofan í kokið á honum - sem og annar gorgeir þessa veika manns.

Í heildina fróðlegur fundur sem staðfestir enn einu sinni þá skoðun mína að við þurfum Hönnu Birnu aftur í stól borgarstjóra og esti flokkurinn ætti að vera í minnihlutanum.


mbl.is Vilja endurtaka atkvæðagreiðslu íbúa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hún er þjóðinni líka dýr -

Sf á Akureyri eyddi miklu fé - EN

Hún er orðin þjóðinni dýr. Og fer versnandi.


mbl.is Kosningabaráttan dýrust hjá Samfylkingunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband