Frábær árangur

Til hamingju ReMake Electric með ykkar frábæra árangur - OG

Tl hamingju Mbl með það að birta þessa jákvæðu frétt.

Það er og sjaldgæft að jákvæðar fréttir séu birtar.

Meira af slíku.


mbl.is Íslenskt sprotafyrirtæki að gera það gott
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagsýnir bændur

Sennilega eru bændur ein hagsýnasta stétt landsins.

En margir þeirra hafa sjálfsagt lent í fagurgala bankanna og notað "tækifærið" til þess að efla tækjakost búa sinna.

Bruðllán hafa varla verið mörg til bænda.

Það væri því eftir öðru að þeir yrðu skornir niður vegna illa ígrundaðra vinnubragða Árna Páls.


mbl.is Óskýrt hvernig fara á með lán bænda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugsanlega

 

 Jóhanna Sigurðardóttir - skapanornin í Stjórnarráðinu sagði að

    að hugsanlega yrði greint frá stöðu mála í byrjun þessarar viku.

Steingrímur - aftökustjóri í fjármálaráðuneytinu hefur ekki staðfest það - hann er upptekinn við að þvinga stjórnarandstöðuna til hlýðni við breta og hollendinga.

Getur ekki einhver sem hefur aðgang að þessu fólki bent því á þá staðreynd að tugþúsundir heimila eiga framtíð sína undir því að þetta fólk hverfi frá sínum hugmyndum  og hlusti á aðra?


mbl.is Frétta að vænta fljótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kraftaverk

Íslenska gámafélagið er frábært fyrirtæki og öflugt.

En að það breyti sjávarföllum - veðurfari og sandmagninu á ströndinni !!!!!

Það held ég að sé meira að segja því ágæta fyrirtæki ofviða.

En það verður fróðlegt að fylgjast með glímu þess við náttúruöflin.


mbl.is Búast við miklum frátöfum í vetur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðuma reddessu.

Slakð á - Össur er að koma - hann reddaressu-
mbl.is Skuldir sliga evruna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ályktunin fagnaðarefni.

Undanfarin ár hefur "ástkæra ylhýra málið" átt undir högg að sækja.

Nema á tyllidögum - í hátíðarræðum - þá mæra menn þetta fallega mál.

Íslenskukennsla í grunnskólum fær EKKI þann sess sem henni ber - fjarri því.

Því ber að fagna framtaki nefndarinnar og vonandi fær þessi ályktun verulega umfjöllun - ekki bara í skólasamfélaginu heldur meðal allrar þjóðarinnar.

Þetta er jú ekki einkamál skólanna - þetta er mál okkar allra.

 


mbl.is Fagna umræðu um nám á ensku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vaxtakostnaður af 0 er 0.

Bretlandisering Steingríms ásamt Hollandiseringunni heldur áfram. Núna á að fá aðila vinnumarkaðarins til þess að þvinga stjórnarandstöðuna til hlýðni. Þetta er ný birtingarmynd kúgunarstefnu stjórnarinna - enn ein aðferðin sem er dæmd til þess að mistakast.

-----------------

samninganefndir landanna tveggja tilbúnar til þess að gefa umtalsvert eftir af kröfum sínum, miðað við upphaflegar kröfur, og mun Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra vera áfram um að ljúka samningum í þá veru sem drögin gera ráð fyrir.

Hann hefur beitt sér fyrir því að forystumenn í atvinnulífinu reyndu að hafa áhrif á stjórnarandstöðuna í þá veru.

--------------

Hundruð milljarða eftirgjöf af VAXTAKOSTNAÐI - vaxtakostnaði af hverjum fj......?

Vaxtakostnaður af 0 er 0 sama hve lengi er reiknað.


mbl.is Knýja á um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Efast einhver lengur??

Ég hef efasemdir um það. Það voru ýmsir sem töldu að svo gæti orðið. Þegar við fórum af stað töldu einmitt margir að þjóðirnar gætu fylgst að,“ segir Árni Þór og vísar til viðvarana evrópskra stjórnmálamanna um að byggja ekki upp of miklar væntingar um að aðildarferlið gangi hratt.

Árni Þór getur ekki leynt vonbrigðum sínum - "flokksbróðir" hans er með óraunhæfar væntingar.

Hvað er Árni Þór að gera í VG?? 

Það liggur á borðinu að stjórnin ætlar með góðu eða illu að keyra þjóðina inn í ESB.

Þjóðaratkvæðagreiðslan verður bara sýndarmennska - leðbeinandi en ekki ráðandi.

Árni birtist loksins grímulaus. Og birtir vilja VG grímulaust.


mbl.is Aðildargluggi að lokast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna + Steingrímur = portúgalskur ráðherra.

Enn einn hótarinn á ferðinni - eða loforðagjafinn -

Jóhanna og Steingrímur hótuðu dauða og tortímingu ef ekki yrði .......bla bla bla

Þessi ráðherra telur sig væntanlega vera að berja þjóðina til hlýðni -

Kanski verður Portúgal fyrst þjóða til að yfirgefa Evruna - umræður hafa verið í Þýskalandi og Frakklandi og kanski víðar um það sama .

EN BARA RÓLEG Sf og VG redda þessu með inngönguskilyrðum - VIÐ GÖNGUM EKKI INN NEMA ÞESSAR ÞJÓÐIR HALDI EVRUNNI - og hver ætti nú að þora að standa á móti slíkri ógn og hótun?


mbl.is Segir Portúgali hugsanlega þurfa að yfirgefa evrusvæðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótorhjólaslys??? Ruddaskapur.

Ruddaskapur og algjört virðingarleysi fyrir lífi og heilsu annara varð 5 manns að bana og 6 slösuðust í UMFERÐAR"SLYSI".

Ekki er með nokkru móti unnt að setja sök á hjólafólkið samkvæmt fréttinni.

Tillitsleysi örfárra ökumanna bifreiða hérlendis setur bifhjólafólk í hættu. Útilokað er að vita í hvaða bifreið sá er sem ekur utaní næsta bifhjól eða verður til þess að ökumaður bifhjólsins verði að grípa til örþrifaráða til þess að sleppa undan þeim ökumanni.

Ég vil benda fólki á þá staðreynd að fjöldi bifhjólafólks hefur vaxið verulega á undanförnum árum. Þar er að finna afa og ömmur - pabba og mömmur - syni og dætur - systur og bræður - frændur og frænkur - og flestir eiga ættingja - kunningja eða vinir/vinkonur - vinnufélaga sem aka á bifhjólum.

Ef þú ekur utaní eða á bifhjól á bifreiðinni þinni ertu að aka á einhvern úr fyrrnefndu hópunum.

Er það kanski ættingi þinn sem er á hjólinu? Vilt þú hafa það á samviskunni að hafa banað ættingja þínum ?


mbl.is Fimm létust í mótorhjólaslysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband