Stjórnkænska Dags og Gnarr
10.12.2010 | 06:50
Góð afkoma borgarinnar fyrstu 9 mánuði ársins er afrakstur traustrar stjórnar Hönnu Birnu Kristjánsdóttur.
Í þessari frétt sem og öðrum af ákvörðunum þeirra Knoll og Tott birtist hinsvegar svört mynd - mynd af vanhæfum stjórnendum.
Nóg er að hafa yfir sér óhæfa og lánlausa ríkisstjórn - það var ekki þörf á því að draga starfsaðferðir hennar inn í borgarstjórn og mergsjúga borgarbúa í tangarsókn ríkis og borgar.
Það má vel vera að þeim félögum sé mikið í mun að reka unglingana út á götuna í leit að afþreyingu.
Ég er þeirrar skoðunar að sú stefna sé röng og ættu þeir félaga að vera sér meðvitaðir um það líka.
En það er kanski Múmínaðferðin -
![]() |
Kemur niður á íþróttum barna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Áfellisdómur yfir Steingrími og Jóhönnu.
10.12.2010 | 06:45
Við eigum ekki að greiða eitt eða neitt - þetta mál á að fara fyrir dómstóla hver sem niðurstaða viðræðnanna er -
íslenska Icesave-samninganefndin gekk til viðræðna við Breta og Hollendinga á þeim forsendum að Íslendingum bæri hvorki að greiða eitt né neitt. Þetta sagði Lárus Blöndal, einn nefndarmanna, þegar niðurstöður viðræðnanna voru kynntar í gær.
Þegar búið verður að vinna málið er Evrópukerfið hrunið - það vita nýlendukúgararnir.
Hvar er annars frumvarpið um að kæra breta fyrir beitingu hryðjuverkalaganna statt??
![]() |
Bar ekki skylda til að greiða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Virkilega ??? er það til hagsbóta ???
10.12.2010 | 06:36
Aðstoðarmaður borgarstjóra segist ánægður með góða stöðu og ef staðan verði einnig góð á næsta ári muni það verða til hagsbóta fyrir borgarbúa.
Maðurinn er fráleitt í lagi - Vissulega er örugg stjórn Hönnu Birnu enn að koma fram og staðfestist í þessari afkomu - sem náðist án þess að leggja auka álögur á borgarbúa.
EN EN EN nú fer að koma fram stjórnkænska núverandi meirihluta - ÞAÐ VERÐUR EKKI TIL HAGSBÓTA FYRIR BORGARBÚA.
Hækkanir OR og hverskyns skatta eru EKKI TIL HAGSBÓTA FYRIR BORGARBÚA.
Allar breytingar gnarrdagsins eru íþyngjandi fyrir borgarbúa og þaðÞAÐ ER EKKI TIL HAGSBÓTA FYRIR BORGARBÚA.
Nóg er um djöfulgang ríkisstjórnarinnar í hækkunum - borgin þurfti ekki að höggva í sama knérunn - það er jú sama fólkið sem verið er að murka niður.
Má vera að næsta ár - árið 2011 - komi vel út fyrir borgina - EN ÞAÐ MUN EKKI KOMA VEL ÚT FYRIR BORGARBÚA SEM ERU MERGSOGNIR Í TANGARSÓKN RÍKIS OG BORGAR.
Þannig að yfirlýsing aðstoðarmannsins er röng. Borgarbúar eru EKKI að njóta góðrar afkomu borgarinnar - þeim er refsað fyrir það að kjósa vanhæfann trúð.
![]() |
Segir hækkanir skatta og gjalda óþarfar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Enn ein viðurkenningin til Hönnu Birnu.
10.12.2010 | 06:21
Þessar tölur sýna enn og aftur hve frábært starf Hanna Birna Kristjánsdóttir vann sem borgarstjóri.
Þessar tölur sýna líka enn og aftur fíflaganginn í núverandi borgarstjóra og hans fólki sem virðist ekki bera skynbragð á eitt eða neitt og setti algjörlega óþarfa álögur á borgarbúa.
Það skiptir engu hvernig narr tafsar - umlar og stamar - EKKERT sem frá honum kemur ber vott um skynsemisörðu.
Aðeins bull og þvættingur - til tjóns fyrir borgarbúa.
Dagur B Eggertsson er ábyrgur fyrir þessu öllu og fetar dyggilega í fótspor lánlausrar ríkisstjórnar sem starfar algjörlega á gnarr nótum og virðist ekki gera sér nokkra grein fyrir afleiðingum gerða sinna.
![]() |
Góður árangur í fjármálum borgarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Beita hryðjuverkalögunum ??
9.12.2010 | 07:27
Núna verða breskir að beita hryðjuverkalögunum aftur - svo eigum við að beita einhverjum lögum gegn Bakkavör líka fyrir það að halda uppi atvinnu í bretlandi.
Þeir fækkuðu uppsögnunum úr 375 í 140 þannig að það hljóta æði margir að vinna hjá fyrirtækinu. Er ekki hægt að flytja þau störf hingað heim?
![]() |
Bakkavör segir upp starfsfólki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þarf ég að vita þetta???? Nei.
7.12.2010 | 09:47
Hversvegna er starfsmönnum fjölmiðla svona mikið í mun að nudda svona "fréttum" framan í fólk?
Það hlýtur eitthvað að vera að hjá þessu fólki -
Hér á síðunni er ein viðbjóðs"fréttin" frá Japan.
Er ekki mál að linni?
![]() |
Embættismaður bakkaði yfir fimm Kínverja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þarf ég að vita þetta????
7.12.2010 | 09:44
Merkileg árátta fréttamiðla að þurfa að nudda svona viðbjóði framan í fólk.
Er eitthvert okkar bættara við það að fá svona upplýsingar?
Ég er sannfærður umað svo er ekki.
Hættið svona óþverrahætti.
![]() |
Myrti fimm mánaða gamlan son sinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Jóhanna , Icesave , skattarnir og þjóðaratkvæðagreiðsla.
7.12.2010 | 06:20
Jóhanna Sigurðardóttir: Ekki kostur að fresta Icesave um vikur eða mánuði
- Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í umræðum á Alþingi um Icesave-frumvarpið 30. desember 2009
Munum ekki hækka skatta
- Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra svarar fyrirspurn á Alþingi 9. febrúar 2009 um hvort ríkisstjórnin hyggist hækka skatta
Jóhanna Sigurðardóttir: Krafan um þjóðaratkvæði brýnni þegar stjórnarhættir minna á einræðisherra
- Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, í grein í Morgunblaðinu 25. maí 2004 þá var hún þingmaður og hvatti til þjóðaratkvæðagreiðslu m.a. um fjölmiðlalögin
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Uppreisn ---- ferill SJS í Icesave
7.12.2010 | 06:12
Uppreisn, verði kröfur samþykktar, október, 08:
Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri grænna, segir að það verði gerð uppreisn hér á landi verði gengið að kröfum Breta og Hollendinga um að Íslendingar greiði 600 milljarða króna vegna Icesave-reikninganna:
http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item233100/
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON, stjórnarandstæðingur
Steingrímur segir að ef það sé rétt að þetta tvennt hangi saman sé það hrein fjárkúgun, október, 08:
Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna segist hafa heyrt þann orðróm að Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hafi sett sem skilyrði að mál vegna Icesave reikninga Landsbankans yrðu gerð upp að fullu við Breta og Hollendinga.
Steingrímur segir að ef það sé rétt að þetta tvennt hangi saman sé það hrein fjárkúgun. Ekki liggi fyrir að okkur sé lagalega skylt að gera það og þetta bendi til þess að verstu martraðir séu að rætast varðandi aðkomu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins:
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/10/22/likir_bretalani_vid_fjarkugun/
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON, stjórnarandstæðingur, janúar, 09:Framan af höfðu ýmsir ráðherrar ríkisstjórnarinnar uppi stór orð um að ekki kæmi til greina að Íslendingar létu kúga sig til uppgjafar í deilunni um hina lagalegu og þjóðréttarlegu ábyrgð landsins gagnvart Icesave-reikningunum. Eins og lögfræðingar hafa bent á var hlutverk innlánatryggingarkerfa samkvæmt reglum ESB/EES-svæðisins aldrei að takast á við allsherjar bankahrun, heldur aðeins fall einstakra banka.
Eins og undirritaður lýsti yfir við atkvæðagreiðslu um málið í þinginu 5. desember síðastliðinn lítur þingflokkur Vinstri grænna á samninginn sem riftanlegan eða ógildanlegan nauðungarsamning. Enn er hægt að afstýra stórslysi fyrir íslenska þjóð. Taki Tryggingarsjóðurinn hins vegar við skuldunum er ljóst að þá verður ekki aftur snúið: Þá hefur þjóðin endanlega verið skuldsett á grundvelli pólitískra þvingunarskilmála sem ríkisstjórnin hafði ekki dug í sér til að standa gegn:http://www.amx.is/adgerd.php?adgerd=pdf&id=7628
Svo mörg voru þau orð
![]() |
Niðurstaða vonandi í vikunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kristján Þór og Sjálfstæðisflokkurinn.
7.12.2010 | 05:52
Hversvegna getur stjórnin ekki hlustað á varnaðarorð Sjálfstæðismanna og tillögur flokksins?
Þarna er um að ræða mjög miklar breytingar á fjárlögunum, segir Kristján Þór Júlíusson, Sjálfstæðisflokki. Forsendur þess voru brostnar þegar það var lagt fram og nú horfum við fram á tekjufallið í tengslum við nýja þjóðhagsspá fyrir næsta ár og varað hafði verið við. Því er mætt með þeim hætti að hræra áfram í ákveðnum stærðum, í stað þess að reyna að skapa auknar tekjur með því að örva atvinnurekstur í landinu eða skera niður á móti þessum útgjaldauka.
Það ætlar að verða þjóðinni dýrt að Jóhanna og Steingrímur hjakka í sömu förunum og þegar þau sátu í stjórnunum sem voru myndaðar - 1988 og 1989 undir forsæti Steingríms Hermannssonar.
![]() |
Tekjur lækka um 11 milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)