Jón í forsætis eða utanríkisráðuneytið.

Jón er sá ráðherra sem hefur staðið vörð um sjálfstæði landsins -

Nær væri að hann yrði fenginn til þess að leggja mat á "umsókn" samfylkingarinnar um inngöngu í ESB.

Víst er að hann seði ekki já við öllum yfirgangi ESB -

Hann segir þjóðinni satt þótt SJS segi allt misskilning sem frá Jóni komi varðandi landsöluna.

Ef þessi ríkisstjórn ætlar að líma sig við stólana burtséð frá hörmulegu gengi og ömurlegum þjóðdrepandi ákvörðunum ætti að setja Jón í annaðhvort ofangreindra ráðuneyta.


mbl.is Krefjast afsagnar Jóns Bjarnasonar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smán og skömm -

Hvað á þetta að þýða ??

Hann verður dæmdur hinu megin - látið manninn í friði. Hann er prestur.


mbl.is Þýskur prestur ákærður fyrir barnaníð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Séra hér og séra þar.

Yfirhylmingar virðast fylgja kirkjunni víða -

Hann verður örugglega dæmdur hinu megin.

það mun vera hægt innan kirkna að fresta dómum þar til eftir andlát starfsmanna kirkna.

Ætli það gildi líka um það starfsfólk sem þrífur  - spilar - syngur og sinnir öðrum störfum en prestsstörfum í kirkjunni?


mbl.is Kaþólskur prestur hátt settur í IRA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljótar lýsingar - Svartstakkar??

Baldur gefur ljótar lýsingar á Flóka og Torfa.

Magnað að hafa svona menn starfandi sem presta - en kemur ekkert á óvart.

Hinsvegar væri gott að fá útlistun á því hverjir Svartstakkar voru og/eða eru.  

Er það einhverskonar handrukkunarhópur innan kirkjunnar? Ofbeldishópur?

Hugrenningar Baldurs setja allskonar hugsanir um kirkjuna og starfsmenn hennar á fulla fer.

Hvað er í gangi innan kirkjunnar - hvað er verið að fela á bakvið hempurnar?

Hverskonar ítök hafa prestar haft að þeir geti falið barnaníð og - eins og Baldur gefur í skyn - jafnvel fengið ríkissaksóknara til þess að snúa blinda auganu að kynferðisafbrotum presta.

Það vakna margar spurningar.


mbl.is „Var ríkissaksóknari beittur þrýstingi"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hvað með það?

Jóhanna og Steingrímur ætla samt að borga - það er verðmiðinn sem settur hefur verið á aðild þeirra að ESB - draumur Jóhönnu rætist með inngöngu (landsali) og SJS fórnar öllu ( líka þjóðinni ) fyrir ráðherrastólinn.

Eini ráðherrann sem stendur vörð um frelsi þjóðarinnar er Jón Bjarnason - - fyrir utan þau 3 virðast ráðherrar láta málið afskiptalítið.

Fróðlegt væri að fá álit þeirra opinberlega. - Hreint út -


mbl.is Segir Ísland ekki mega borga fyrir Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón segir STOPP

Einn ráðherra stendur vörð um sjálfstæði þjóðarinnar -

Blekkingarleikur JS og SJS er afhjúpaður í þessum orðum Jóns - þakkir til hans.


mbl.is Kominn tími til að segja stopp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trúverðugleiki

Fyrst hún er búin að tilkynna þetta - er þá trúverðugleikinn sá sami ?

 


mbl.is Óvíst um framlengingu samnings Joly
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Villandi fréttir

Það mætti halda að "fréttin" hafi verið skrifuð af samfylkingunni.

Stór hlutur Jóhönnu FYRIR hrun gleymist - sem og MJÖG stór hlutur samfylkingarinnar -

Ég vissi ekki að það væru meðmæli að vera samkynhneigður - vissi reyndar ekki að kynhneigð væri það svona yfirleitt.

 


mbl.is Jóhanna meðal helstu kvenleiðtoga heims
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hækkun í boði R-listanns.

Orkuveitan skuldar 240 milljarða króna. Langstærstur hluti þeirra skulda er til kominn vegna fjárfestinga fyrirtækisins í virkjunum og veitum, sem ákvarðanir voru teknar um á síðasta kjörtímabili R-listans 2002-2006.

 

Þegar Sjálfstæðisflokkurinn komst í meirihluta árið 2006 hafði fráfarandi meirihluti R-listans mótað stefnu um gífurlegar virkjanaframkvæmdir á Hellisheiði, gert bindandi orkusölusamninga og hafið byggingu Hellisheiðarvirkjunar. Ekki var annað að gera en klára virkjunina og standa við skuldbindingarnar. Stærstur hluti lánanna var því tekinn á síðasta kjörtímabili en ákvarðanir voru að mestu leyti teknar á valdatíma R-listans og undir borgarstjórum Samfylkingarinnar.

 

Á árunum 2001-06 áttu sér stað mikil uppkaup OR á veitum og dreifikerfi á Suðurlandi og Vesturlandi. Lítil arðsemi hefur verið af þessum veitum og sumar beinlínis reknar með tapi.

 

Bág staða OR skrifast því á R-listann - (Samfylkinguna ) sem hvergi segist hafa komið að málum.


mbl.is Tveggja stafa hækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Milljarðar

Það er rétt hjá Atla - sambandið mun leggja milljarða í áróðursherferð sína hérlendis.

Hefur einhver spáð í það hversvegna þeim er svona mikið í mun að fá okkur inn?

Dettur ráðherraliðinu nokkuð í hug að þeir séu að gera þetta af góðmennsku?

Ástæðan er einföld - ESB ágirnist náttúruauðlindir Íslands - er það flókið?


mbl.is Ólga í grasrót vinstri-grænna vegna aðlögunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband