Færsluflokkur: Dægurmál
Ýkjuvísindi
22.1.2010 | 04:09
Hér er enn eitt dæmið um ýkjuvísindi - samkvæmt öðrum ýkjuvísindumættum við ekki að verða meira en 30 ára vegna okkar óholla lífernis.
Ágiskanir og dómsdagsspár "vísindamanna" sem hirða stórfé í laun fyrir bullið - eru búnar að kosta almenning á jörðinni mikið fé - fyrir utan "laun" "vísindamannanna".
Hitastig hér á landi mun vera lægra en í landnámi - Vatnajökull hét Klofajökull hér áður fyrr -
Hefur fólk gert sér grein fyrir ástæðunni? Hversvegna hefur núna birst bær sem er búinn að vera undir jökli í einhver hundruð ár? Getur verið að jökullinn hafi verið minni áður? Hversvegna? Eða grófu menn bara holu í jökulinn og byggðu bæ á botni holunnar?
Hugsum áður en við kokgleypum fullyrðingar "vísindamanna" sem virðast geta sett fram hverskyns fullyrðingar án þess að geta sannað nokkur skapaðan hlut og hafna jafnvel staðreyndum sem blasa við og stangast á við fullyrðingar þeirra.
![]() |
Játa á sig ýkjur um bráðnun jökla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Frábært fólk
16.1.2010 | 06:51
Stjórnendur og starfsmenn Landspítalans eiga heiður skilinn fyrir frábæran árangur - tiltekt í fjármálum og rekstrarskipulagi Landspítalans hlýtur að vera erfið þegar allt hefur verið gert í mörg ár til þess að spara.
![]() |
Stöðugildum fækkaði um 70 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er manninum alvara?
16.1.2010 | 06:46
" Í þessum hópi eru bestu rekstrarmenn í verslun á Íslandi " segir Jón Ásgeir.
Fyrirgefið mér þekkingarskortinn - en - er þetta fyrirtæki ekki gjaldþrota ?- vantar ekki milljarðatugi til þess að koma því á núllpunktinn ? Var það ekki undir stjórn þessara sömu manna?
Spurði bara.
![]() |
Jón Ásgeir segir Walker með í tilboðinu í Haga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
"Stuðningur" svía
16.1.2010 | 06:37
svíar eru EKKI stuðningsaðilar okkar og hafa aldrei verið - má nefna afstöðu þeirra innan Allþjóða hvalveiðráðsins þar sem þeir berja á okkur eftir fremsta megni -
þá má líka nefna undirboð þeirra í skkipasmíðum sem ásamt öðru rústaði skipasmíðaiðnaði okkar og starfsmenn stöðvanna urðu að fá sér vinnu hjá sænsku stöðvunum - sem var hláleg staða.
hættum þessu bulli um "frændur okkar" á Norðurlöndunum.
og eins og sagt er - norðmenn eru íslendingar sem þorðu ekki að sigla til Íslands á sínum tíma - allir vildu hingað - þeir kjörkuðu fóru - hinir sátu eftir og hefna sín núna - ég hef enga trú á "aðstoð" þaðan - svíar eru enn stærstir og skáka í því skjólinu - norðmenn eru farnir að banka á og heimta sæti í ráðum og nefndum sem svíar sitja í fyrir hönd norðurlandanna fjögurra -
![]() |
Mikilvægt að veita Íslandi stuðning |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vextir af ekki skuld
16.1.2010 | 06:17
Hvað er í gangi - ??? Er framvarðasveit breta og hollendinga þau SJS og JS búin að ákveða ( áður en kemur að þjóðaratkvæðagreiðslu ) að borga ? Það þurfi bara að laga vextina?
Hvaða þvættingur er þetta??
Fyrst þarf að semja um grunntölu ( hvað hver þjóð tekur á sig ) síðan að semja um að "skuld" okkar verði talin í krónum á samkomulagsdegi - og svo um vextina -
grunnskuldinni verði skipt á milli þjóðanna eftir höfðatölu.
bretar greið x upphæð í bætur vegna hryðjuverkalaganna og þess tjóns sem gordon brown olli með beitingu þeirra.
![]() |
Myndu stefna á lægri vexti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Vörn og sókn
16.1.2010 | 06:10
Myndu bretar verjast slíkri kröfu ???????
Þeir þurfa þess ekki - 1. varnarlína þeirra hefst í Forsætisráðuneytinu og liggur þaðan um Fjármálaráðuneytið - um valdastofnanir framkvæmdavaldsins . Ríkisstjórnin ver þá línu
lína 2 liggur umhverfis landið og er varin af þingflokkum Samylkingar og VG -
bretar þurfa ekkert að vesenast í þessu.
![]() |
Bretar myndu verjast slíkri kröfu af hörku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstu skotin
16.1.2010 | 06:04
VG er líka búið að skjóta föstum skotum á þjóðina - afkomumöguleika hennar og framtíð -
og er enn að
![]() |
Fast skotið á báða bóga hjá VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
vonleysi
15.1.2010 | 10:38
Þegar ég sá fyrirsögnina kom fyrst í hugann að nú hefði "ríkisstjórnin" verið að tjá sig en sá svo að um var að hræða þessa hroðalegu atburði á Thahíti.
Sumir atburðir sem skekja líf og tilveru fólks eru af náttúrunnar völdum og eru margir alltof hroðalegir.
Aðrir eru hinsvegar af mannavöldum - sjálfsmorðsárásir og þess háttar viðbjóður - hryðjuverk af versta taki.
Og svo er það "RÍKISSTJÓRNIN Á ÍSLANDI" sem er að steypa þjóðinni í glötun - meira að segja lífsnauðsynleg lyf fá ekki að vera í friði og fara úr kr. 0 upp í t.d. 15.000.- (eigin reynsla).
Vonleysi - kanski ekki enn - en með núverandi kommúnistastjórn þá kemur það fljótlega.
![]() |
Vonleysi í augum íbúa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jæja já þabbasona
15.1.2010 | 10:23
Sjálfstæðiþingmaðurinn Pétur Blöndal flutti tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu sem var hafnað
Sjálfstæðismenn voru henni hlyntir en vildu á sama tíma undirbúa og vinna að viðræðum við kúgunarþjóðirnar - sem og var því haldið fram að við ættum EKKI að greiða reikninginn vegna Icesave.
Jóhanna flutti hávaða ræður um skoðanaskipti í Sjálfstæðisflokknum - engin leið væri að henda reiður á það hvaða skoðun flokkurinn hefði -
Núna virðist hún komin á skoðun Sjálfstæðismanna - Í dag að minsta kosti -
Loksins gerir hún sér grein fyrir því að lögin verði felld í þjóðaratkvæðagreiðslunni og því þurfi að grípa til þess NÚNA að ganga til samninga.
Og svo vill fólk hafa þessi ósköp áfram í Stjórnarráðinu
![]() |
Jóhanna: Skynsamlegra að leysa án þjóðaratkvæðagreiðslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Upplýsingaskortur
15.1.2010 | 06:08
Hvað á konan við - SJS og JS eru búin að "upplýsa" okkur vel og rækilega um það hvað við værum vont fólk ef við borgum ekki.
Þau eru líka búin að setja okkur í gapastokk hækkaðra skatta og álagnginga - niðurfellinga niðurgreiðslna lyfja ( var í Lyfju í gær - ætlaði að ná í lyf sem gerir mér kleift að tóra - það er komið úr því sem næst engu í 15.000) - og hækkaðs verðs á hverskonar vöru og þjónustu. Allt þetta hefur verið vel og rækilega kynnt - þannig að það að bera svona upp á stjórnvöld er rangt - við erum vel upplýst um þessi mál sem og hvað gerist ef þetta og hitt er ekki samþykkt fyrir þessa og hina dagsetninguna.
Það sem vantar er að fulltrúar þjóðarinnar geri grein fyrir málstað Íslands og okkar sem hér búum.
Þar verðum við að treysta á stjórnarandstöðuna - Indefens hópinn - forsetann og útlendinga.
Ég hvet þann hóp til aðgerða.
![]() |
Skýri hina hliðina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)