Færsluflokkur: Dægurmál

prestatal

Þá kom fram presturinn Kristín Þórunn Tómasdóttir og - taldi kjark í þjóðina - eða þannig

"umheimurinn snúið baki við okkur, vegna framgöngu okkar og viðhorfa gagnvar öðrum "

Er ekki allt í standi hjá þessum kvenmanni ???  Hver ábyrgi aðilinn á eftir öðrum kemur fram í erlendum fjölmiðlum og tala okkar málstað - og almenningur erlendis og hér heima hlustar - viðhorfið erlendis er að breytast -

það eina sem er ekki að breytast er sú staðreynd að forsætisráðherra og fjármálaráðherra Íslands hamast við að tala þjóðina niður ( ásamt prestinum ) og tala röngum málstað breta og hollendinga.

Hún sagði líka að við þyrftum að horfast í augu við það hversvegna við lentum í ............

vissulega - en við þurfum líka að horfast í augu við það að ef prestar telja það sitt hlutverk að kjafta þjóðina niður og fara með rangt mál þá þarf að leiðbeina þeim - beina þeim inn á réttan veg -

Vonandi er þessi kvenmaður eina tilfellið í stéttinni sem hagar sér með þessum hætti


mbl.is „Við erum líka týnd“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framhjá Selfossi

 

Er þetta ekki ávísun á meira umferðaröryggi - minni verslun ?

Ef allur þessi gegnumakstur verður tekinn frá Selfyssingum er það sannfæring mín að umferðaröryggi í bænum muni batna stórlega -

ég er líka efins um að verslun minnki að ráði - ef fólk vill snæða eða versla á Selfossi þá einfaldlega gerir það það eftir sem áður.


mbl.is Selfyssingar ekki lengur í alfaraleið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bótakröfur

Tek heilshugar undir orð Pjeturs Stefánssonar

það er mikil ábyrgð að starfa að fréttamensku - það er hægt að skrumskæla atburði til tjóns en líka að sýna raunsanna mynd sem væri til bóta -

Um aðbúnað lögreglumanna þarf varla að fjölyrða - hann er ekki nógu góður og öryggi þeirra er ekki tryggt sem skyldi.


40.000.000.000.-

Er þá ekki rétt að fara að skoða tillögu XD um skattlagningu lífeyrissparnaðar þegar hann er greiddur inn í sjóðina en ekki þegar hann er greiddur út.

Mér skilst að þar fengi ríkið fjörutíu milljarða á ári en greiðslur til lífeyrisþega skerðast EKKI við þetta.

það væri þá hægt að slaka á skattahækkunum og verðhækkunum.

Það er rangt há SJS að með þessu væri verið að velta byrðum yfir á framtíðina - málið er að lífeyrisþegar standa klárari að því hvað þeir fá. Þeir eru þá ekki háðir því hvaða skattprósenta verður í gangi þegar að greiðslu kemur - þeir eru þá búnir að borga skattana af þessu. Og ífeyrisþegarnir fá EKKI skattahlutann til ráðstöfunar við útborgun frekar en við innborgun.


mbl.is Ekki hætta á greiðsluþroti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Andar köldu

ekki bara frá "stjórninni"
mbl.is Snjóaði snemma í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drykkir/vökvi

Fyrst vínið - svo djúsið ( var gosið ekki hækkað um daginn ? )

Hvað verður næst ? Ofurálagning á vatnið?

Þá er bara rigningin - sjórinn - árnar og stöðuvötning eftir - jú og uppistöðulónin.

Brjálaður peningur  í því öllu saman.

Áfram skattmann


mbl.is Undrast allt að 45% álögur ríkisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og líka frændur okkar Færeyjingar

 

Vonbrigði með Færeyjar - hvað um það

VIÐ VEIÐUM EIS OG OKKUR SÝNIST Í EIGIN LANDHELGI -

Hvernig eru heildarskipti á veiðum þjóðanna innann landhelgi hverrar annarar?

Þarf ekki að endurskoða öll samskipti í ljósi reynslu síðustu mánaða?


mbl.is Íslendingar ekki við borðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skuldaríki/skuldaskjaldborg

Það er allt í lagi -

hækkanirnar á víni - tóbaki o.fl. juku skuldabyrði heimilanna um 5.5 milljarða og næsta hækkun gerir væntanlega eitthvað svipa - þannig að hagstjórnin getur vel við unað -

það er jú markmið "ríkisstjórnarinnar" ekki satt - halda heimilunum innan skuldaskjaldborgar?


mbl.is Sala á áfengi dróst saman í september
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Burt með ags

 

Rétt hjá Ögmundi - enda sparkaði Jóhanna honum -

Verður hann næsti forsætisráðherrann?


mbl.is Höfum ekkert við AGS að gera
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drepa eða ekki að drepa

 

Ég er líka mjög vonsvikinn vegna þeirrar staðreyndar að bretar - bandaríkjamenn - og fleiri þjóðir skuli halda áfram að drepa fólk hvar sem þeim sýnist ef það hentar þeim til þess að "verja" sig og sína.

En það er jú ekki verið að veiða hvali vegna olíuhagsmuna - þá er það fólk sem er drepið.

Misminnir mig það að bandaríski túnfiskveiðiflotinn drepi tugþúsundir smáhvela við veiðar sínar? Og kasti þeim fyrir borð.

En það er að sjálfsögu annað - morðglaðasta og byssuóðasta þjóð veraldar má gera það sem henni sýnist - með breska viðhengið dinglandi á afturendanum á sér.

Líka það að starta einu stykki heimsbankakreppu - sennilega í því skyni að "verja" sig og sitt.


mbl.is Sameinast um að fordæma hvalveiðar Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband