prestatal

Þá kom fram presturinn Kristín Þórunn Tómasdóttir og - taldi kjark í þjóðina - eða þannig

"umheimurinn snúið baki við okkur, vegna framgöngu okkar og viðhorfa gagnvar öðrum "

Er ekki allt í standi hjá þessum kvenmanni ???  Hver ábyrgi aðilinn á eftir öðrum kemur fram í erlendum fjölmiðlum og tala okkar málstað - og almenningur erlendis og hér heima hlustar - viðhorfið erlendis er að breytast -

það eina sem er ekki að breytast er sú staðreynd að forsætisráðherra og fjármálaráðherra Íslands hamast við að tala þjóðina niður ( ásamt prestinum ) og tala röngum málstað breta og hollendinga.

Hún sagði líka að við þyrftum að horfast í augu við það hversvegna við lentum í ............

vissulega - en við þurfum líka að horfast í augu við það að ef prestar telja það sitt hlutverk að kjafta þjóðina niður og fara með rangt mál þá þarf að leiðbeina þeim - beina þeim inn á réttan veg -

Vonandi er þessi kvenmaður eina tilfellið í stéttinni sem hagar sér með þessum hætti


mbl.is „Við erum líka týnd“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég fæ ekki betur séð að hún sé á mála hjá samfylkingunni.  Þeir leita greinilega allra ráða nú. Ef þetta á að vera hughreysting, þá hefur henni förlast hrapalega. Að þjóðkirkjuprestur vogi sér að tala svona niður til fólksins, er gersamlega óþolandi.

Jón Steinar Ragnarsson, 10.1.2010 kl. 16:07

2 identicon

dream on... Viðhorfið erlendis er enn hið sama. Þó íslenskir fjölmiðlamenn reyni nú að leita uppí hverja einustu pósitívu færslu í athugasemdakerfi erlendra fjölmiðla og í bloggheimum og birta þær á besta stað. Mér finnst frekar eins og sumir séu að berja hausnum í steininn, og haga sér alveg eins og útrásarvíkikingarnir okkar forðum (2003-2008).

áhugasamur (IP-tala skráð) 10.1.2010 kl. 21:05

3 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Ég svara yfirleitt ekki nafnleysingjum -  - fylgstu með því sem er að gerast -

ég skil ekki hversvegna sumt fólk vill hanga í því farinu að bretar og hollendingar hafi rétt fyrir sér - þegar einn af þeim sem samdi reglugerðina varðandi þessi má fyrir Evrópu segir að túlkun þeirra sé röng - þá tek ég meira mark á því en nafnleysingja á Íslandi.

Gagnrýni mín beindist að málflutningi prestsins - -

Ólafur Ingi Hrólfsson, 10.1.2010 kl. 23:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband