Færsluflokkur: Dægurmál
Jóhanna + Steingrímur = portúgalskur ráðherra.
15.11.2010 | 01:33
Enn einn hótarinn á ferðinni - eða loforðagjafinn -
Jóhanna og Steingrímur hótuðu dauða og tortímingu ef ekki yrði .......bla bla bla
Þessi ráðherra telur sig væntanlega vera að berja þjóðina til hlýðni -
Kanski verður Portúgal fyrst þjóða til að yfirgefa Evruna - umræður hafa verið í Þýskalandi og Frakklandi og kanski víðar um það sama .
EN BARA RÓLEG Sf og VG redda þessu með inngönguskilyrðum - VIÐ GÖNGUM EKKI INN NEMA ÞESSAR ÞJÓÐIR HALDI EVRUNNI - og hver ætti nú að þora að standa á móti slíkri ógn og hótun?
![]() |
Segir Portúgali hugsanlega þurfa að yfirgefa evrusvæðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mótorhjólaslys??? Ruddaskapur.
14.11.2010 | 08:30
Ruddaskapur og algjört virðingarleysi fyrir lífi og heilsu annara varð 5 manns að bana og 6 slösuðust í UMFERÐAR"SLYSI".
Ekki er með nokkru móti unnt að setja sök á hjólafólkið samkvæmt fréttinni.
Tillitsleysi örfárra ökumanna bifreiða hérlendis setur bifhjólafólk í hættu. Útilokað er að vita í hvaða bifreið sá er sem ekur utaní næsta bifhjól eða verður til þess að ökumaður bifhjólsins verði að grípa til örþrifaráða til þess að sleppa undan þeim ökumanni.
Ég vil benda fólki á þá staðreynd að fjöldi bifhjólafólks hefur vaxið verulega á undanförnum árum. Þar er að finna afa og ömmur - pabba og mömmur - syni og dætur - systur og bræður - frændur og frænkur - og flestir eiga ættingja - kunningja eða vinir/vinkonur - vinnufélaga sem aka á bifhjólum.
Ef þú ekur utaní eða á bifhjól á bifreiðinni þinni ertu að aka á einhvern úr fyrrnefndu hópunum.
Er það kanski ættingi þinn sem er á hjólinu? Vilt þú hafa það á samviskunni að hafa banað ættingja þínum ?
![]() |
Fimm létust í mótorhjólaslysi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vitfirring - MARKAÐSVERÐ Á NAUÐUNGARSÖLUM.
13.11.2010 | 09:17
Ætla ríkið og bankarnir að halda þessu áfram?
Hvað á ríkið margar kröfur í þessu Nóaflóði krafna ?????
Í hve mörgum tilvikum er það ríkið sem er forgangsaðili í því að gengið sé að fólki ???
Á sama tíma og ríkið gerir samninga við AGS um að ganga milli bols og höfuðs á almenningi verður þetta svona.
En er ekki tími til kominn að ríkisstjórnin fari að sinna þörfum landsmanna frekar en AGS?
Hvað ætla bankarnir að gera við allt það húsnæði sem þeir kaupa á nauðungaruppboðunum á smánarverði ?
Mig minnti reyndar að lög hefðu verið sett sem segðu að á uppboðum yrði verðið að vera raunhæft og í samræmi við markaðsverð. Það er kanski misminni hjá mér. En það ætti að vera í lögum.
![]() |
101 þúsund vanskilamál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Túlkun Guðlaugar er hneisa.
13.11.2010 | 01:59
Í lokaorðum sínum segir Guðlaug -
Íslenskt samfélag lítur jafnvel niður á það þegar ómenntaður borgarstjóri segist ætla að reiða sig á fagfólk við fjárhagsáætlanagerð, eins og slíkt sé hneisa.
Þetta er rangt - villandi og hreinn þvættingur - allar borgarstjórnir hafa haft slíkt fólk sér við hlið.
Það sem samfélagið gagnrýnir er það að núverandi eða borgarstjóri - þá á ég við Jón en ekki Regínu - skuli ekki bera skynbragð á eitt eða neitt í málefnum borgarinnar. Guðlaug ætti að vita að innan borgarkerfisins er fagfólk sem sinnir þessum málum. Hún og Jón virðast því vera álíka illa að sér í málefnum borgarinnar.
Ef túlkun formanns BHM er svona á öllum sviðum er hún búin að kjafta sig út í horn sem ómarktækur einstaklingur með einn sem félagsskap - Jón Gnarr.
![]() |
Mannauðsstjórn á alltaf að fara eftir lögum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Flughraði
12.11.2010 | 07:01
Var hann að æfa sig í að vera á flughraða? -
198 - ER GAURINN GEGGJAÐUR -
![]() |
Tekinn á 198 km hraða á leið í flug |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
HAGAR
12.11.2010 | 06:59
Enn ein fléttan -
getur ekki einhver tekið saman þessa skák og skrifað leikina upp og útskýrt fyrir okkur - hvað gerðirst - hversvegna - hver er staðan - hversvegna allar þessar sviptingar - frá degi til dags og jafnvel frá því fyrir hádegi fram á seinnipart dags.
![]() |
Náðu sáttum í riftunarmáli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sko Pál.
12.11.2010 | 06:55
Nú eiga að gilda sömu reglur um vinstri menn og Sjálfstæðismenn -
Það er þó mikil framför og ber að óska honum til hamingju með það - og einnig að styðja við á ákvörðun RÚV að láta Þórhall fara.
RÚV VERÐUR að vera hlutlaus fjömiðill - annað gengur ekki upp.
Og þá vaknar spurningin um Egil - er hann að færast í sanngirnisátt líka eða ????
![]() |
Ósamrýmanleg hlutverk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sérálit????
12.11.2010 | 06:49
Er maðurinn ruglaður ?? - Taldi hann að hann ætti að hafa eigin skoðun í þessari vinnu ? Ekki skrýtið að ríkisstjórnin geti ekki lagt fram tillögur ( nú eða nefndin ) ef menn ætla að fara að hugsa sjálfstætt - það gengur bara ekki.
Marinó verður að fara að lesa sér til um pólitískann rétttrúnað.
![]() |
Hefði tekið mánuði eða ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gasalega sætt
12.11.2010 | 06:43
"Nánustu ættingjar" frændur vorir og vinir -
Nýjasta afrek norðmanna gagnvart okkur var í Makrílmálinu - þar kalla þeir okkur öllum illum nöfnum og standa gegn okkur - vilja jafnvel meina okkur að veiða innan eigin lögsögu -
Máltækið segir - frændur eru frændum verstir -- norðmenn hljóta að vera ofboðslega miklir frændur okkar.
![]() |
Þið mynduð gleðja Ingólf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Múhameð spámaður -
11.11.2010 | 15:24
Einhvernveginn held ég að spámaðurinn hafi ekki séð fyrir ofstæki og gerræði fylgenda sinna þegar hann vísaði þeim veginn.
Kanski vísaði hann þeim allt annan veg en þeir ganga í dag -
Hinsvegar ber að varast það að taka allt trúanlegt sem kemur frá þeim sem vilja slá ryki í augu okkar sem hér búum með því að segja að þetta sé bara ekki svona - þetta sé bara áróður Ísraelsmanna. Allir Múslimar sem hingað koma séu bara ekkert líkir þessu fólki sem hagar sér svona.
Varla ráða Ísraelsmenn miklu um dómstóla í Pakistan.
![]() |
Dæmd til dauða fyrir guðlast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)