Færsluflokkur: Dægurmál

8000

Til þess að halda hlutfalli miðað við höfðatölu þurfa bandaríkjamenn að vinna keppnina 8.000 sinnum bara til þess að jafna Jón Pál og Magnús Ver - kanar eru jú 1.000 sinnum fleiri en við.
mbl.is „Þetta var erfitt en hafðist“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flytja fleira

Legg til að Jón Gnarr flytji sig úr ráðhúsinu þannig að unnt verði að nýta skrifstofu borgarstjóra til þess að stjórna borginni
mbl.is Jón Gnarr: Héraðsdómur flytji sig annað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SJS talar - ÓN talar -

Steingrímur - sá sem fyrrum var baráttumaður - er búinn að vera fyrir löngu - brotinn og bugaður -

Það er ekki nóg að gagnrýna SJS fyrir málæðið - það er hans aðalsmerki - Það sem Ólöf og hennar fólk þarf að gera er að leggja fram raunhæfa valkosti - gefa fólki færi á að sjá stefnu Sjálfstæðisflokksins út úr þessum málum.

Það þýðir ekkert fyrir andstæðinga flokksins að öskra hrun hrun hrun - Bankahrunið var ekki búið til hér - en það þýðir heldur ekki fyrir Sjálfstæðisflokkinn að segja - vont vont og vitlaust en leggja ekki fram raunhæfar tillögur til úrbóta.

Flokkurinn vill Icesave fyrir dóm - gott - gera það - en hvað með öll hin málin? Skattahækkanir - verðhækkanir - kjaraskerðingarnar - hvaða tillögur er Sjálfstæðisflokkurinn með í þeim þáttum?


mbl.is Óvarlegt að tala svona
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Þórsarar

Vont þegar leikir eru svona jafnir - spennan verður hroðaleg
mbl.is Þór í úrvalsdeild - Fjarðabyggð féll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konungurinn

Konungur varamannabekkjanna heldur embætti sínu -
mbl.is Eiður varamaður gegn West Ham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorg

Það veldur mér sorg að sjá undirlægjuhátt Steingríms við Hollendinga og Breta.

Að þessi  eitt sinn trausti og hrausti stríðsmaður skuli liggja svona gjörsamlega hundflatur og kasta fyrir borð réttindum þjóðarinnar er sorglegt. Hann kastar ekki bara réttindum þjóðarinnar fyrir róða heldur vill hann setja manndrápsklyfjar á hana vegna glæpa nokkurra útrásarmanna - ógæfumanna sem allt snerist í höndunum á. Og Steingrímur vill að þjóðin borgi.

Forsetinn - sem er að sjálfsögðu líka að auglýsa sig - reynir að verja þjóðina í erlendum fjölmiðlum - Steingrímur leggur það í rúst -

Allt er þetta tal Steingríms þjónkun við Samfylkinguna í þeim tilgangi að koma þjóðinni inn í ESB hvað sem tautar og raular. Allt fyrir ráðherrastólana.

Hér áður fyrr var VG einn traustasti hlekkurinn í því að viðhalda sjálfstæði þjóðarinnar - Ásamt Sjálfstæðisflokknum var VG í brjóstvörn þjóðarinnar gegn framsali fullveldis þjóðarinnar til ESB. Þá bar formaður VG höfuðið hátt - stoltur ÍSLENDINGUR - baráttujaxl af gamla skólanum. Nú er öldin önnur - stoltið farið - reisnin horfin - og eftir stendur beygður maður - gamall fyrir aldur fram.

Öðruvísi mér áður brá Steingrímur J Sigfússon.

 

 


mbl.is Steingrímur: Íslendingar munu borga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hreinræktuð skömm

Þetta flokkast undir atvinnuuppbyggingu og gengur því  þvert á stefnu stjórnvalda.

Þetta skerðir innflutning á olíu og er þarafleiðandi væntanlega gjaldeyrissparandi - sem er þvert á stefnu stjórnvalda.

Þetta virðist vera skynsamlegur kostur - sem gengur þvert á skilning stjórnvalda.

Svandís - treysti þér til þess að stöðva þetta. (Umhverfismat - staðsetningarmat o.fl.).

Staðsetningin er skynsamleg - og það getur ekki gengið.


mbl.is Risaverksmiðja í pípunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverskonar --------------

Svandís sagði NEI og þegar Svandís segir NEI - þá á það að standa - nema því aðeins að neiið sé slíkt rugl að að það standist ekki -

En þetta er slíkur ruddaskapur að hún hlýtur að fara með þetta til pabba.


EKKI BISKUPINN - ÚFF

Gott að það skuli bara vera veðurKarl en ekki biskupsKarl sem er orðinn að fellibyl.

Það síðara hefði getað valdið verulegu tjóni.

 


mbl.is Karl orðinn að fellibyl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svandís flottust

Svona á að gera þetta -

Etja fólki/sveitarfélögum út í málaferði og láta svo ríkið greiða 1.450.000 í kostnað -

Tekjutap sveitarfélaganna er svo einhver önnur tala -

Núna - þar sem Svandís tapaði málinu - fer það væntanlega fyrir Hæstarétt - niðurstaðan þar gæti tafist ef 5 reynslumestu dómarar réttarins verð uppteknir við að létta byrðunum af VG í ráðherrabrennunni.

Segi og skrifa - SVANDÍS ER FLOTTUST -


mbl.is Synjun ráðherra ógilt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband