Öllum ber skylda til að stuðla að vexti og viðgangi íslenskunnar
17.11.2010 | 07:45
Væri það ekki ágætis innlegg að "hið opinbera" hætti að standa í vegi fyrir því þarfa verki?
Endurskoða sess hennar í grunnskólum landsins - gefa kennurum færi á að koma henni til skila á viðeigandi hátt. Breyta námsskránni.
Leggja skólunum til meira fé til námsgagnakaupa - fyrir utan Námsgagnastofnun.
![]() |
Öllum ber skylda til að stuðla að vexti og viðgangi íslenskunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kúgunarferlið heldur áfram.
17.11.2010 | 07:30
Núna virðist stjórnarandstaðan ætla að kyngja því að greiða stórfé sem rök mæla gegn.
Það liggur ekkert fyrir um að við eigum að greiða þetta - annað en kúgun breta - hollendinga - ags og esb .
"Matsfyrirtækin" sem mátu bankana uppúr öllu valdi þegar þeir voru í raun og veru fallnir eru svo líka í kórnumm. - Og sjs reynir að fá aðila vinnunarkaðarins til þess að kúga stjórnarandstöðuna.
Og er að takast það.
Allt fyrir inngönguna í esb.
Ég hélt að yfirgnæfandi meirihluti Sjálfstæðisflokksins og VG væru á móti aðild - sem og fleiri á þinginu.
Mér virðist ég hafa haft á röngu að standa.
![]() |
Lausn jákvæð fyrir lánshæfismat |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Evrópufræðasetur Háskólans á Bifröst ????
17.11.2010 | 07:23
Hvert er hlutverk þessa "seturs"?
Er líka til Asíufræðasetur ? Ameríkufræðasetur ? Austurlandafræðasetur ?
Ef ekki - hversvegna Evrópufræðasetur ?
![]() |
Hægðu á aðildarferlinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Frábær borgarstjórnarfundur
17.11.2010 | 01:19
Sat á pöllunum - tillögur Sjálfstæðisflokks um íbúalýðræðið - fínar - við bót ágæt -
Tillaga VG um bátamál - fín líka - einn fulltrúi esta flokksins vildi vísa þeirri tillögu rangrar nefndar en var leiðréttur og sætti sig við það.
Umræða um OR og framkomu borgarstjóra - borgarstjóri fór fram á það að borgarfulltrúar sýndu hver öðrum kurteysi - honum var bent á hans eigin ruddaskap í viðtölum þar sem hann er ólatur við að níða skóinn af fólkinu sem hann vill að sýni honum kurteysi.
Honum finnst hann sýna borgarfulltrúum virðingu - á milli þess sem hann rakkar þau niður í fjölmiðlum - eftir þessa gagnrýni nefndi hann ekki gagnkvæma virðingu - talaði reyndar ekki eftir það og fórst það vel úr hendi. Fyrir utan fýlusvip og taugaveiklun.
Dagur B tjáði sig líka og - í alvöru - var málefnalegur - þótt ekki væri ég sammála öllu sem hann sagði.
Þáttur Jóns nar í borgarstjórn er sorgarsaga - Yfirlýsingar hans í fjölmiðlum um það hvernig hann bjargaði OR voru reknar ofan í kokið á honum - sem og annar gorgeir þessa veika manns.
Í heildina fróðlegur fundur sem staðfestir enn einu sinni þá skoðun mína að við þurfum Hönnu Birnu aftur í stól borgarstjóra og esti flokkurinn ætti að vera í minnihlutanum.
![]() |
Vilja endurtaka atkvæðagreiðslu íbúa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)