Endemis þvættingur kjaftaskúms.

Hann kann að koma fyrir sig orði - kunni það líka í fyrri hótanahrinum t.d. vegna Icesave þegar minnihlutinn ásamt nokkrum stjórnarsinnum - aðilum utan þings og að lokum forsetanum og þjóðinni tólkst að hnekkja landráðasamningi Svavars Gestssonar.

Margítrekaðar hótanri Steingríms og Jóhönnu reyndust vera innantómt gaspur - gaspur sem ekki var hlustað á og með því sparaði andstaðan þjóðinni hundruð milljarða.

ÞAÐ ER STJÓRNIN SEM HELDUR SKÚTUNNI Á STRANDSTAÐ -

Í hruninu steytti þjóðarskútan á skeri - í stað þess að losa hana af skerinu tók ríkisstjórnin sig til og keyrði hana lengra upp á skerið og setti hana kolfasta.

Það eina sem er rétt hjá Íslandsböðlinum er það að aðgerðir stjórnarinnar munu hafa "stórpólitísk og langvinn áhrif". Hann reynir að koma sökinni á aðra. Það er misráðið.  Það eru EKKI aðgerðir minnihlutans eða forsetans sem valda því. Né heldur andstaða þjóðarinnar - Íslandsböðullinn og skapanornin í stjórnarráðinu eiga þann pakka ásamt þeim sem styðja þau.


mbl.is „Mikil ábyrgð að velta steinum í götuna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Réttlausir lögreglumenn.

Magnað að lesa efnislega sama frasann aftur og aftur. Ráðist á lögreglumann/enn - árásaraðilinn fékk skilorðsbundinn dóm.

Morðhótanir - skilorðsbindinn dómur - lögreglukona slegin í andlitið sparkað í höfuð lögreglumanns - lögreglumönnum og fangaverði hótað lífláti - skilorðsbundinn dómur.

Hversvegna ? Eftir hverju er verið að bíða ? Að sparka í höfuð fólks getur hæglega orðið viðkomandi að bana. Í þessu máli er líka ( að því er virðist ) dæmt vegna líkamsárásar sem átti sér stað fyrr. Þar er sekt.

Þar var líka um að ræða spark í höfuð manns.

Hvað má þessi maður sparka í höfuð margra áður en hann fær alvöru dóm? Er verið að bíða eftir því að fórnarlamb láti lífið?

Vanvirðing dómstóla fyrir öryggi lögreglunnar er til skammar.


mbl.is Sló lögreglumenn og hótaði öðrum lífláti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 27. desember 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband