Ógnin mikla
23.3.2010 | 18:35
Það er gaman og fróðlegt að fylgjast með andstæðingum Hönnu Birnu. Dagur B sem er HOLDGERFINGUR VANÞEKKINGARINNAR ásakaði hana um daginn vegna framkvæmda hjá GR og talaði um bruðl. Í ljós kom að um var að ræða efndir á samningi frá tíð Steinunnar Valdísar -
Þegar Ólafur Fr. svívirti embætti borgarstjóra og borgarstjórn sá umræddur Dagur ekki ástæðu til þess að verja virðingu enbættisins eða borgarstjórnar - skömm hans var alger . Í tölvupósti til mín sagði hann að Ólafur hefði líka sagt hluti sem hefði þurft að segja. Þar seldi Dagur virðingu embættisins fyrir skrum.
Það verður fróðlegt að heyra umræðuna næstu daga.
Hanna Birna - til hamingju með árangurinn og ykkar frábæra starf.
![]() |
Gallup: Ánægja með Hönnu Birnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
RÚSS/ÍSLANDIA
23.3.2010 | 17:59
Kanski er þetta leiðin -
Við búum líka við kommúnistastjórn sem er að skapa hér Rússneskar aðstæður -
Í ráðherraliðinu eru 8 uppalningar Alþýðubandalagsins -
Kanski er þessi leið almennings í Rússlandi sú sem verður tekin upp hér - drekkum frá okkur ráð og rænu - þá eru endalokin nærri og við nálgumst þau dofin í áfengisvímu -
![]() |
Vodkadrykkja helsta banameinið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
"Samstarf"
23.3.2010 | 17:51
Einhver þyrfti að útskýra fyrir jóhönnu hvað samstarf er.
Samstarf snýst um að virða samkomulag sem gert er - það er rétt hjá henni að stöðugleikasamkomulagið fjallar ekkiog snýst ekki um Skötusel. Hinsvegar er það frumvarp/lög dæmi um það hvernig stjórnin hudsar samkomulagið sem gert var. Meira að segja js hlýtur að skilja það ef einhver sest niður með henni og útskýrir muninn.
Hrokinn í yfirlýsingu ráðherrans er hinsvegar dæmigerður fyrir þessa voluðu stjórn.
![]() |
Hvetur SA til áframhaldandi samstarfs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Á réttri leið
23.3.2010 | 07:24
Ríkisstjórnin er að ná árangri samkvæmt gereyðingaráætlun sinni-
Slæmt er reyndar að kaupmátturinn hafi lækkað um 3,4% en ekki 34% - en með sama áframhaldi kemur þetta hjá þeim.
Aðalatriðið til þess að hraða þessu er að hækka laun þeirra sem eru með um milljón á mánuði -
lækka greiðslur til elli og öryrkja og umfram allt einstæðra mæðra -
Þessir 4 þættir verða að hafa forgang.
Og svo þarf líka að hækka skattaálögur og verðlag -
![]() |
Kaupmáttur lækkar enn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tilslökun Svandísar.
23.3.2010 | 07:18
Það væri tilslökun af hálfu Svandísar að vilja ræða þessi mál á skynsemisgrundvelli -
En til þess yrði væntanlega að leita út fyrir raðir VG að fulltrúa fyrir hana.
Ofstæki í "umhverfisvernd" er slæmt - kæruleysi í umhverfisvernd er líka slæmt.
Látum skynsemina ráða - við þurfum að virkja - það er vitað - gerum það af ábyrð og skynsemi.
![]() |
Meirihluti vill ekki slaka á umhverfisvernd fyrir stóriðju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Bjarni
23.3.2010 | 01:49
Bjarni Harðarson er nú bara flokkur svona útaf fyrir sig -
Hann vekur athygli hvar sem hann kemur og hvar sem hann talar -
Það að hann skuli fara fram fyrir VG - eeeeeeeeeee - well ok -
![]() |
Bjarni á lista VG í Árborg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Vilhjálmur á villigötum
23.3.2010 | 01:43
Stöðugleikinn heldur - Vilhjálmur misskildi sáttmálann -
Hér er stöðugur uppgangur í atvinnuleysi - stöðugur niðurgangur í uppbyggingu - stöðugur uppgangur í hækkunum - stöðugur niðurgangur í uppbyggingu - stöðugur uppgangur í vonleysi - stöðugur niðurgangur í heilbrigðri skynsemi - stöðugur uppgangur í ínnantómum yfirlýsingum stjórnarinnar og þannig mætti lengi telja.
Hvað er þá Vilhjálmur að meina - fylgist hann ekki með - í heildina er stöðugleiki í hruni samfélagsins og í fjármálaráðuneytinu situr ígildi Skötusels hvað gleypugetu varðar - og restin fer í Hrunaáargilið í Stjórnarráðinu.
Hvað er svo að Vilhjólmur???
![]() |
Stöðugleikasáttmálinn rofinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)