Matsfyrirtækin --- og Stóri bróðir í Valhöll.
14.4.2010 | 14:25
Þessir óskeikulu álitsgjafar sem vita alla hluti betur en aðrir eru búnir að setja Ísland í ruslflokk - ekki síst vegna þess að vantrú þeirra á ríkisstjórn landsins er algjör -
Hitt á Pétur Blöndal að vita ( og getur fengið staðfestingu hjá andstæðingum flokksins ) að Sjálfstæðisflokkurinn stjórnaði matsfyrirtækjunum. Þau sendu bara frá sér það sem Valhöll sagði þeim að senda frá sér. "Langbesta mat í öllum heiminum" - Jájá Valhöll sagði þeim að segja það.
Á sama hátt og Valhöll segir dómurum landsins hvernig dóma eigi að fella í hvert eitt sinn.
Ennfremur eru allir opinberir starfsmenn í beinu sambandi við Valhöll og taka við fyrirmælum þaðan.
Viti Pétur þetta ekki ætti hann að lesa blogg stjórnarsinna hér á Mbl. Þar birtist stóri sannleikur.
Skýrsla rannsóknarnefndarinnar er frábær en fjarri því að vera fullkomin eins og þetta sem Pétur bendir á sýnir okkur -
Það er fínt - ef skýrslan væri fullkomin væri að í fyrsta sinn sem eitthvert mannanna verk væri það.
![]() |
Ábyrgð einnig hjá matsfyrirtækjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ótrúverðug vísindi
14.4.2010 | 10:14
Haraldur Sigurðsson hefur ekki ( svo ég muni) áður sagt frá þessum augljósu hreyfingum - núna þegar eitthvað er farið í gang hefur þetta verið vitað undanfarna mánuði - Eru fleiri upplýsingar - sem eru vitað mál - sem hann gæti upplýst okkur um svona fyrirfram - ekki eftirá?
Núna virðist sem gosið í Fimmvörðuhálsi hafi í raun verið viðbúið - bara ekki þar - annarsstaðar.
Jarðskjálftar sem hafa verið að "læðast austur" hafa þá platað alla núna - eða eru laumujarðskjálftar og felukvikuhlaup að undirbúa Kötlugos?
Fræðingurinn má gjarnan upplýsa okkur um þetta mál - Kötlugos gæti nefnilega orðið stórt.
![]() |
Hætta á sprengigosi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mælitæki o.fl
14.4.2010 | 10:03
ÞETTA ER EKKI NEITT -
og þurfti hvorki skólagöngu ( nema þessa í skóla lífsins ) og engin tæki - þurfti ekki einu sinni að fljúga yfir svæðið.
Sjáum til hvort álit þeirra bræðra reynist vera rétt.
![]() |
Þetta er ekki neitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Afsökunarbeiðni - en hvað svo??
14.4.2010 | 09:52
Fínt að biðjast afsökunar - en meira þarf til -
Björgólfur hefur til ráðstöfunar mikla fjármuni - Hann bjargaði lyfjafyrirtækinu frá því að lenda í höndum þýskra með stóru láni -
Hvernig er sú staða ?? Hvað varð um bótaskyldu Björgólfs? Finnst honum rétt að halda gífurlegum fjármunum okkar í eigin rekstri? Er ekki rétt að nokkur hundruð milljarðar komi til baka til þjóðarinnar sem jú sannarlega á þetta fé?
Ónýt stjórn mun ekkert gera í þessu máli - ákallið er því tilBjörgólfs að hann rísi upp og fylgi eftir afsökunarbeiðni sinni með fjármagni - NÚNA -
![]() |
Björgólfur biðst afsökunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fleiri mistök
14.4.2010 | 09:40
![]() |
Gordon Brown viðurkennir mistök |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Maður líttu þér nær.
14.4.2010 | 01:14
Nær væri að hann hvetti helfararstjórnina til þess að segja af sér -
eftir helfararvíkinga þolum við ekki meira af slíku
![]() |
Hvatti forsetann til að segja af sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)