Ekki hlusta á Brynjar.

Þegar málum er svona komið á ekki að hlusta á mann sem veit um hvað hann er að tala - þekkir réttindi og skyldur - lög og lagaframkvæmdir.

Nú á skrílræðið að ráða en ekki svona rökrétt framsetning um lög og rétt.

Mannréttindi eiga ekki við - bara hefndin -

Það er vonandi að þeir þingmenn sem vilja keyra þetta í gegn geri ekki mistök í starfi.

Væntanlega greiða Steingrímur - Jóhanna - Össur - Svandís - Ögmundur - Álfheiður - o.fl. atkvæði gegn því að draga þetta fólk fyrir Landsdóm.

Finnst engum skrýtið að við skulum vera eina þjóðin sem stendur í svona löguðu? Þrátt fyrir samskonar atburði í öðrum löndum.

Svo er það stóra spurningin um aðkomu embættismannanna að þessu máli - og öðrum málum.

Þarf ekki að kalla einhverja þeirra fyrir Landsdóm - nú eða einhvern dóm - fyrir að leyna upplýsingum fyrir ráðherrum?


mbl.is Úreltur landsdómur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband