Glæpastarfsemi
4.10.2010 | 15:19
Þetta er það sem Sigurður Kári Kristjánsson tók upp á þingi þegar í ljós kom að 18. grein Viljayfirlýsingarinnar fæli þetta í sér.
Það var fátt um svör -
Og núna er það ljóst að AGS ræður ferðinni hér - sjóðurinn krefst aukinnar þátttöku heimilanna en gleymir því að fólk er atvinnulaust þúsundum sama og getur ekki meira -
Legg til að Landsdómur verði undibúinn.
Starfssemi AGS er alltaf sjálfri sér lík - keyra lönd í svaðið og leggja bestu bitana undir bandarísk fyrirtæki.
Förum að ræða við Kína og Rússland í fullri alvöru. Burtséð frá mannréttindabrotum - við gætum þá hugsanlega komið í veg fyrir mannréttindabrot gagnvart okkar eigin fólki.
Engin fleiri úrræði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þú manst væntanlega hver bauð AGS hingað?
Hamarinn, 4.10.2010 kl. 17:18
Við erum með ríkisstjórn núna og skiptir engu hver kallaði inn AGS. Þau geta losað okkur við AGS. Þú afsakar ekkert núverandi helstjórn með AGS eða fyrrverandi ríkisstjórn.
Elle_, 4.10.2010 kl. 18:39
Og ég átti þig, Hamar, ekki Ólaf.
Elle_, 4.10.2010 kl. 18:41
Nei, ég átti VIÐ þig.
Elle_, 4.10.2010 kl. 18:41
Nei þú hefur aldrei átt mig.
Ég er ekki að reyna að afsaka núverandi óstjórn.
En þið sjallar virðist alltaf gleyma hver á hrunið frá A-ö. Og hverjir kölluðu AGS hingað til lands til að verja fjármagnseigendur.
Hamarinn, 4.10.2010 kl. 23:31
Elle - ég bið þig afsökunar á því að þessi sjúki maður (hamarinn) skuli hafa tjáð sig hér - það virðist ekki unnt að koma í veg fyrir að hann tjá sig vítt og breitt og ég hef ekki þá lækniskunnáttu sem virðist þurfa til þess að hjálpa honum -
Ég gerði það sem ég gat sem var að vísa honum á Geðdeild Lsh - en hann virðist ekki hafa farið eftir þeirri ráðleggingu.
Hvað varðar AGS þá var það ekki inni í myndinni að hann tæki hér yfir - samskipti stjórnarinnar við sjóðinn hefur einkennst af undirlægjuhætti - ekki samvinnu.
Helstjórnin var ekki bundin af neinu þegar hún tók við - þau vissu bara ekkert hvað þurfti að gera og vita ekki enn.
Ólafur Ingi Hrólfsson, 5.10.2010 kl. 05:49
Þú ættir að hringja í 118, og spyrjast fyrir um númerið á augndeild LSH.
Hamarinn, 5.10.2010 kl. 21:26
Ólafur.
Við hverju bjuggust sjallarnir þegar þeir BUÐU AGS hingað?
Hélduð þið að það væri einhver önnur meðferð sem Ísland fengi en önnur lönd sem hafa boðið þessu drasli í heimsókn?
Hamarinn, 5.10.2010 kl. 21:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.