Fór á Austurvöll

Mikil spenna lá í loftinu og reiði - reiði sem fékk heilbrigða útrás - þar til vesalingar hentu grjóthnullungum að lögreglu -

Ég tek ekki þátt í mótmælum sem stuðla að því að valda lögreglumönnum skaða -

Ég tek heldur ekki þátt í mótmælum sm eru skipulögð af fólki sem vill selja okkur undir erlend yfirráð -

Við þurfum kosningar strax og lög leyfa - þangað til ber þingmönnum að mynda starfhæfa stjórn sem vindur ofan af skattagerræði stjórnarinnar og fer m.a. lífeyrissjóðsleiðina í tekjuöflun - setur icsave fyrir dóm -

Að leita til erlendra sérfræðinga - fínt - hvaðan ? Nokkrir hafa komið hingað - og væru örugglega til í að koma aftur - sem efnahagsráðgjafar -

En slökum aðeins á - þarf ekki hugarfarsbreytingu hjá almenningi hér - fjölmiðlar kyntu undir múgsefjun fyrir síðustu kosningar og VG stjórnaði kórnum - núna syngur kórinn bara ekki Internationalinn -

Hversvegna eru viðbrögðin hér með þeim hætti sem raun ber vitni um? Enginn ráðherra hefur verið dreginn fyrir dóm erlendis svo ég viti til.

Vissulega á ríkisstjórnin að fara frá - NÚNA -

En að selja okkur í leiðinni undir erlenda aðila er ekki rétt -


mbl.is Rúður brotnar í þinghúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband