Ruglaðir lögreglumenn? Eða hver er ruglaður?

Sko - í fyrsta lagi er verið að fæla fólk úr landi - það dregur úr álagi -

í öðru lagi - það er miklu lengra til Eskifjarðar frá ráðuneytinu en austur á Selfoss - þannig að - ráðherra mætir bara með sitt starfsfólk þegar á þarf að halda.

í þriðja lagi - eftir dóminn yfir Pólverjunum/Litháunum - sem réðust á lögreglumenn að störfum á Laugavegi á sínum tíma - þá eru lögreglumenn réttlausir - eiga vart tilverurétt og geta því ekki sett fram neinar kröfur.

Öryggi lögreglumanna er í lágmarki - og svo má heldur ekki dæma þá sem kasta í þá grjóthnullungum -

 virðist sem ráðuneytið líti þannig á málin að það sé í lagi að kasta grjóti í lögreglumenn en ekki rúður -

Eða hver voru ummælin eftir að rúða var brotin i Dómkirkjunni - ( sem er ólíðandi )?

Það er okkar öryggi - okkar hagur  að löggæslan sé í lagi - við getum líka lagt okkar af mörkum með því standa með okkar löggæslu -

 


mbl.is Vegið að öryggi Sunnlendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband