Til hamingju og þakkir fyrir aðstoðina

Nokkuð oft hef ég leitað á þessa deild - alltaf hefur viðmótið verið það sama  - eldklárt fumlaust fólk að störfum.

En einhvernveginn finnst mér almenningur áhugalaus um störf þessarar deildar eins og reyndar um störf hjúkrunarfólks almennt - og stuðningur lítill. En við erum fljót að hlaupa til þegar á bjátar.

Ég er einn af þeim sem vill vera viss um að hjúkrunarfræðingarnir - sjúkraliðarnir og læknarnir séu á "sínum stað" þegar ég þarf á þeim að halda en er sama hvort Seðlabankastjóri er hér eða þar.

Það er löngu orðið tímabært að almenningur sýni heilbrigðisstarfsfólki stuðning í verki - stuðning og þakklæti.


mbl.is Starfsfólk gjörgæslu bakaði fyrir afmælisveisluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

hlaupa til þeirra  -- átti að standa þarna.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 25.10.2010 kl. 09:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband