Blekkingarleikur - og RÚV spilar með - að venju -

Á sama tíma og talað er um að verðbólgumarkmið Seðlabankans hafi náðst er engin skýring gefin á því hvernig þau hafi náðst - níðingsháttur - ofsköttun - fáránlegar hækkanir og þjóðin keyrð í höft kommúnisma - Sovétskipulagsins gamla. Gjaldeyrishöft - og aðrar niðurrifsaðgerðir standa á bakvið þessar yfirlýsingar. Vestfirðingar vilja fá að vita hvort stjórnin ætli að "gefa skít " í Vestfirði eða koma þeim til aðstoðar - Aðgangur að HÍ er takmarkaður og allt annað í sama dúr.

Svo talar Seðlabankinn fagnandi um árangur - Trotskyistinn í fullu samræmi við niðurrifsstarfssemi Íslandsbana og Skapanornnarinnar í Stjórnarráðinu.

Það eru nöturlegar aðferðir.

RÚV birtir upplýsingar Seðlabankans hráar - gagnrýnislaust - enda opinber fréttastofa stjórnarinnar - sanngirni - hlutleysi og jafnræði er ekki til í orðaforða starfsmanna RÚV - eða þá að skilningur orðanna er annar hjá þeim en hjá öðru fólki.


mbl.is Verðbólgan í samræmi við markmið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm eitthvað skal þetta heita.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.12.2010 kl. 18:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband