Endemis þvættingur kjaftaskúms.
27.12.2010 | 07:37
Hann kann að koma fyrir sig orði - kunni það líka í fyrri hótanahrinum t.d. vegna Icesave þegar minnihlutinn ásamt nokkrum stjórnarsinnum - aðilum utan þings og að lokum forsetanum og þjóðinni tólkst að hnekkja landráðasamningi Svavars Gestssonar.
Margítrekaðar hótanri Steingríms og Jóhönnu reyndust vera innantómt gaspur - gaspur sem ekki var hlustað á og með því sparaði andstaðan þjóðinni hundruð milljarða.
ÞAÐ ER STJÓRNIN SEM HELDUR SKÚTUNNI Á STRANDSTAÐ -
Í hruninu steytti þjóðarskútan á skeri - í stað þess að losa hana af skerinu tók ríkisstjórnin sig til og keyrði hana lengra upp á skerið og setti hana kolfasta.
Það eina sem er rétt hjá Íslandsböðlinum er það að aðgerðir stjórnarinnar munu hafa "stórpólitísk og langvinn áhrif". Hann reynir að koma sökinni á aðra. Það er misráðið. Það eru EKKI aðgerðir minnihlutans eða forsetans sem valda því. Né heldur andstaða þjóðarinnar - Íslandsböðullinn og skapanornin í stjórnarráðinu eiga þann pakka ásamt þeim sem styðja þau.
Mikil ábyrgð að velta steinum í götuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sammála þér.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.12.2010 kl. 12:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.